Réttarstaða mín í leiguhúsnæði.. HJÁLP!

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Réttarstaða mín í leiguhúsnæði.. HJÁLP!

Postby ValliFudd » Tue 13. Feb 2007 20:29

Ég var að leigja íbúð... skrifað undir samning á föstudag.. flutt inn strax..
Þegar við vorum að skrifa undir samninginn sáum við smá vatnspoka undir málningunni í loftinu og gaurinn sagði "ekkert mál, ég læt bara frænda minn kíkja á þetta strax"
Svo kom í ljós í gær að þetta er sprungin lögn í vegg.. ég er semsagt að fá niður eldhúsvegginn hjá mér það sem þeir á næstu 3 hæðum fyrir ofan eru að setja í vaskinn sinn.. namm :?
Ég hringdi strax í gaurinn og sagðist vilja út, mjög kurteist, því það er ekki von á viðgerð í bráð og þá fer vika í það..
2 dagar í að brjóta sig inn í veggi
2 dagar í að skipta um lagnir
2 dagar í frágang...

Gaurinn sem kom og skoðaði þetta og dæmdi sagði að hans fyrirtæki væri það upptekið að þeir kæmust ekki fyrr en eftir 2 ár
:lol: greit... svo það var boðaður húsfundur sem verður eftir viku og þá á að skoða hvað gera skal..

Sem þýðir líklegast að það gerist ekkert alveg á næstunni.. og ég vil ekki búa hérna, enda ekkert sérstaklega geðslegt að hafa slef annara íbúa hússins lekandi niður veggi eldhússins..

Ég semsagt vildi komast út og lét strax vita af því.. En þau segja:

"Nei, það er búið að þinglýsa samningnum og þú ert með 3ja mánaða uppsagnarfrest... svona er þetta bara!"

What can i do??? :(
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Einarsss » Tue 13. Feb 2007 20:32

voða lítið ... enda bindandi samningur :(


En ef hann græjar þetta ekki strax þá er möguleiki að það sé hægt að rifta samningnum hefði ég haldið
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby ValliFudd » Tue 13. Feb 2007 20:32

Það eina sem mér dettur í hug er að flytja út, kominn með aðra íbúð... og breyta þessu bara í partýkofa kraftsins næstu 3 mánuði? :lol:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Aron Andrew » Tue 13. Feb 2007 20:33

ValliFudd wrote:Það eina sem mér dettur í hug er að flytja út, kominn með aðra íbúð... og breyta þessu bara í partýkofa kraftsins næstu 3 mánuði? :lol:


Þú hugsar alltaf svo rétt 8)
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Lindemann » Tue 13. Feb 2007 20:39

ValliFudd wrote:Það eina sem mér dettur í hug er að flytja út, kominn með aðra íbúð... og breyta þessu bara í partýkofa kraftsins næstu 3 mánuði? :lol:


haltu bara nokkur góð partí og þá ætti fólkið fljótlega að vera til í að stytta uppsagarfrestinn þegar nágrannarnir fara að láta heyra í sér! :wink:
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby ValliFudd » Tue 13. Feb 2007 20:55

En svona án alls rugls...

Er möguleiki að ef ég flyt út að fá niðurfellda húsaleigu þar til þetta verður komið í lag? Þar sem þetta er nú niðurfallið úr íbúðunum fyrir ofan?
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Bjarkih » Tue 13. Feb 2007 20:59

Þú ert náttúrulega ekki að fá það sem þú borgar fyrir, það er galli á íbúðinni. Einnig sagðist leigusali ætla að láta kíkja á þetta STRAX sem þýðir væntanlega viðgerð STRAX, ég myndi leggja þann skilning í það að ef viðgerðin fer ekki fram strax eins og lofað var við undirritun þá er hann ekki að standa við sinn hluta. Annars get ég bara ráðlagt þér að hringja í neytendasamtökin, held ekki að það séu nein leigjendasamtök á Íslandi. Það eru svoleiðis samtök hér í Svíþjóð og það er mjög hughreystandi að hafa svoleiðis á bakvið sig.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby ValliFudd » Tue 13. Feb 2007 21:50

III. kafli. Ástand hins leigða húsnæðis.
15. gr. Spillist leiguhúsnæði fyrir upphaf leigutíma þannig að það verði óhæft til fyrirhugaðra nota fellur leigusamningurinn úr gildi.


Ætli ég geti nýtt mér þetta? :-k
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby pallorri » Tue 13. Feb 2007 21:53

ValliFudd wrote:
III. kafli. Ástand hins leigða húsnæðis.
15. gr. Spillist leiguhúsnæði fyrir upphaf leigutíma þannig að það verði óhæft til fyrirhugaðra nota fellur leigusamningurinn úr gildi.


Ætli ég geti nýtt mér þetta? :-k


Mér finnst nú mjög sennilegt að þú getir notað þetta..
En djöfull væri ég EKKI sáttur í þínum sporum maður :?


Gangi þér vel með þetta...
pallorri
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1452
Joined: Wed 13. Apr 2005 18:27

Postby Spiderman » Tue 13. Feb 2007 21:58

Ég er reyndar menntaður lögfræðingur en rosalega upptekinn þessa stundina vegna ritgerðarskila eftir 14 klst :?

En í stuttu máli þá þarft þú að gera leigusala grein fyrir þessu innan 1 mánaðar frá afhendingu. Ef hann gerir ekkert til þess að ráð bót á þessu innan mánaðar þá getur þú aflað leyfis byggingafulltrúa, gert við þetta sjálfur og dregið það frá leigunni. Ef þú gerir ekki við þetta og leigusalinn verður ekki við kröfu þinni innan 2 mánaða, þá er þér heimilt að rifta leigusamningnum. Á meðan leigusalinn gerir ekkert í málinu, þá átt þú rétt á lækkun húsaleigu en byggingafulltrúi metur lækkunina. Bæði þér og leigusala er þó heimilt að bera ákvörðun byggingafulltrúa um lækkun undir kærunefnd húsaleigumála.

Vona að þetta hafi hjálpað eitthvað :!:
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991

Nikolai Smolenski wrote: Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual
User avatar
Spiderman
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1117
Joined: Mon 09. Jun 2003 19:49
Location: Hafnarfjörður

Postby bimmer » Tue 13. Feb 2007 22:24

Er þessi nefnd ekki 1-2 mánuði að afgreiða erindi?
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby ValliFudd » Tue 13. Feb 2007 22:35

bimmer wrote:Er þessi nefnd ekki 1-2 mánuði að afgreiða erindi?

ég er frekar hræddur um það.. og þá er það hætt að skipta nokkru máli.. það er einn lögfræðingur að kíkja á þetta einmitt fyrir mig.. sem hefur svolítið verið að fikta í húsaleigumálum :wink:

Það er verið að semja fyrir mig bréf sem á að hræða :lol: Vonum bara að það dugi.. ég nenni ómögulega að fara í hart.. ég flyt út á morgun sama hvernig fer...
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Alpina » Tue 13. Feb 2007 22:46

Mér líður þannig að þetta sé ,,vont
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby Astijons » Wed 14. Feb 2007 01:24

hahahhaha
2ár ...
ég elska pípara...
við erum svo fyndnir...
Astijons
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1035
Joined: Sun 29. Oct 2006 22:38

Postby freysi » Wed 14. Feb 2007 18:43

ef þú sást þetta áður en þú skrifaðir undir hefðir þú einfaldlega átt að bæta þessu inn í samningin að það yrði gert við þetta strax. Það er bara ekki hægt að treysta fólki lengur, sama í hvaða bransa.
E90 320i '06

birkire wrote:4 door þristar... LEIM
freysi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 495
Joined: Mon 10. Nov 2003 01:11
Location: Honolulu, Hawaii

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 46 guests