Jæja... Það er búið að vera að versla smá í þessa græju...
Það sem er búið að kaupa er wet nítrókerfi frá nos og er stemmt að vera með 80hp nítró í sumar...
Síðan er hérna heddpakkninga sett og tímareima sett ásamt vatnsdælu og keðju á milli knastásana
Verslaði MO30 Koni sport dempara á ebay um daginn og lét testa þá um leið og þeir komu til landsins og eru þeir eins og nýjir
Sagaði samt gormaskálina af þeim áðan
Enn til að setja coilover breytingakit á þá... Keypti sett fyrir framdemparana og eru gormarnir fyrir 600 lbs hver og lítill helper spring til að halda gorminu kyrrum í sætinu þegar bíllinn er tjakkaður upp....
Þessir gormar eru reyndar race only

Enn þetta verður fínt
Tók og pússaði framdemparana áðan líka og málaði þá aftur gula
Bíllinn er btw kominn á svartar felgur núna og bíður eftir að fjöðrunarkerfið allt verður sett í.. Þarf að rífa hjólastellið undan að aftan og skipta um vindustangir... þannig að það stefnir allt í að þetta verði einn stífasti porsche landsins
Hlakka til að sjá þetta Low ass hell
