Ég var fyrir nokkrum misserum látin útskýra það á mínum vinnustað hvernig starfsmaður ég væri og hvað ég contributaði til vinnustaðarins, mér fannst þetta alveg fáránlegt og þetta minnti mig á Office Space, nema hvað, ég skrifaði eitthvað kjaftæði og sendi það inn, gaf þeim basically það sem þeir vildu.
Nema þá fór ég að hugsa um hversu margar tegundir það eru af starfsmönnum, við erum með sleikjur, slackers, happy go getters, tala meira gera minna vs. tala minna gera meira týpur. Undirförula djöfla eins og mig sem snúa yfirmönnum sínum um fingur sína og svo framvegis.
Endilega látið í ykkur heyra hvernig þið fílið ykkur í ykkar vinnu og hvað þið gerið.
Svo ef þið nennið að taka þátt í minni pælingu, reynið að koma með nokkrar tegundir starfsmanna sem ykkur dettur í hug.

