Jónína Ben? Drottning tölvupóstanna?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Jónína Ben? Drottning tölvupóstanna?

Postby ValliFudd » Thu 01. Feb 2007 15:11

Hvað þarf maður að gera til þess að fá fullan aðgang að tölvupóstum landsmanna? :shock: Mér finnst nú að þessi kona ætti að fá einhverjar kærur á sig frá persónuvernd. Hún kemur fram með hvern tölvupóstinn á fætur öðrum sem "lentu inn á borð" hjá henni..

Er hún að lesa mína tölvupósta líka? Og þína?

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1250992

Jónína Benediktsdóttir segir að tölvupóstar í olíumálinu hafi lekið út
Bloggað um fréttina


Jónína Benediktsdóttir segir á bloggvef sínum að tölvupóstar olíuforstjóranna hafi verið komnir inn á heimili hennar og þáverandi sambýlismanns hennar, Jóhannesar Jónssonar, löngu áður en þeir bárust Samkeppnisstofnun.

„Hvað gerðist, ef ég nú vogaði mér að láta almenning vita, að tölvupóstar olíuforstjóranna voru komnir inn á heimili mitt og Jóhannesar í Bónus, löngu áður en þeir bárust Samkeppnisstofnun? Fæ ég þá fleiri og magnaðri árásir í Baugsmiðlunum? Hvers vegna segir enginn: Það þarf að rannsaka upphaf olíumálsins? Hver ýtti því úr vör? Hvaða hugur bjó þar að baki? Góðmennska, hefndarhugur?" að því er segir á bloggveg Jónínu Benediktsdóttur.


Hvaðan fékk hún þessa tölvupósta? Ég þekki hvorki þetta olíumál né Baugsmál neitt sérstaklega en það sem mér finnst furðulegast við þessi mál er hvernig hún er alltaf búin að lesa alla tölvupósta á undan öllum öðrum..
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby siggik1 » Thu 01. Feb 2007 16:15

Drama queen at day, hacker at night !
User avatar
siggik1
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1445
Joined: Mon 18. Apr 2005 23:22
Location: Reykjavík

Postby siggir » Thu 01. Feb 2007 16:58

Jóhannes í Bónus fær bcc af öllum tölvupóstum sem eru sendir á landinu :P
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory
User avatar
siggir
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1721
Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Location: 1 2 Selfoss


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 52 guests