Saga bílsins er sú að hann er fluttur inn til landsins sem flóðabíll frá USA en þar hafði hann sinnt starfi sem ráðuneytisbíll hjá Breska sendirráðinu. Þegar hann kom hingað til lands var gert við hann (og það eru misgóðar sögurnar sem að fara af því) og var bíllinn mjög spakur um langt skeið en á þeim tíma var hann í eigu manns sem að rak SHELL bensínstöðina v/ fitjar í Njarðvík. Að þeim tíma loknum gekk bíllinn á milli manna og endaði í höndum þekkts manns í Vogum sem að hefur gengið berseksgang á sjúkrahúsum svo fleira sé nefnt og endaði bíllinn einsog hann er í dag í höndum þess manns eftir eltingaleik við lögreglu sem að svo endaði með handtöku og upptöku mikils magns af fíkniefnum og vantar alla innréttingu í skottið og var bíllinn í milljón bútum þegar við vinirnir fengum hann í okkar hendur!
Núna er búið að raða í hann því sem að hægt var að fá aftur af innréttingunni og er mikil vinna fyrir höndum því að ásamt því að vera klesstur er vatnskassinn ónýtur og hefur bíllinn verið keyrður þannig með þeim afleiðingum að heddpakkningin er ónýt.
Ef að einhver veit um svona bíl í niðurrifi er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við mig og láta mig vita því að mér vantar eitt og annað!
En hér fylgir ein mynd af dýrinu;



