by Stanky » Sun 28. Jan 2007 00:58
Okei....
Það eru 2149 notendur skráðir hér.
Ef við gefum okkur að það séu um 20% af þeim sem eru virkir hérna, þá erum við að tala um 430 manneskjur. Nú ef við gefum okkur það að það eiga að minnsta kosti 365 notendur afmæli á sitthvorum deginum, þá erum við að tala um einn afmælispóst á dag. Nú vegna þess að ég reiknaði með 430 virkum notendum, og ef allir eiga afmæli á mismunandi degi, þá vitum við að að minnsta kosti 65, af þessum 430 eiga afmæli og einhver á sama dag. Þá erum við með að minnsta kosti 430 afmælis-pósta á ári, og stundum tvo pósta á sama dag.
Nú, það vita allir að það pósta ekkert allir afmælisdögunum sínum hérna, þannig að ef við reiknum með að 20% af þessum 430 pósti afmælisdögum sínium hér, sem verða þá, 86 notendur, eða 86 afmælispóstar.
Og já, ég elska að reikna.
En, til hamingju með mest tilgangsminnsta póst hér ever. Og til hamingju með afmælið. Party on Garth.