´
Ég fór s.s. í bæinn í gær í þeim tilgangi að ná í þetta blessaða olíusíuhús, en nei, olíusíuhúsið sem kom til landsins er fyrir Japan version bíl, s.s. bíl með olíukæli
. Það voru þar af leiðandi tengi fyrir olíukæli á þessu blessaða olísíuhúsi. Það þarf nú varla að taka það fram að þessu var að sjálfsögðu kippt í liðin af engum öðrum en meistaranum sjálfum Dr. E31, og var rétt síuhús sett í hraðpöntun og er það væntanlegt til landsins í byrjun næstu viku. Þannig að enn og aftur dregst það á langinn að blessaða sjöan komist á götuna
Ég ætla svo að nota tækifærið og taka fram að sjöan kemst ekki á næstu samkomu Mbk,
ömmudriver



