Bíllinn er kominn í ca. 185 þús og það lítur ekki vel út. Byrjað á því í gær morgun að hann var svo þungur í startinu að hann rétt fór í gang, svo ég setti hleðslutæki á dýrið en það vantaði ekkert á geyminn enda ný upptekinn alternator. Í gær kvöld var bílinn eins og var eins og vélin væri þung svo ég setti bílinn inn og kíkti á olíukvarðann.
Nú er illt í efni, olían var þeytt svona gul froða efst á olíukvarðanum svona eins og þegar olían blandast vatni. Þannig að það er tvennt í stöðunnni, heddpakkning farinn eða sprunga í heddi, samt er andskotinn ekkert farið af vatni úr vatnsforðabúrinu.
Allar ábendingar eru mjög vel þegnar.




