oldschool. wrote:
fékk framstuðara, grill, framljósin og vélarhlíf þarna á 8000 kall

Gott mál ég var að spá í það að taka húddið vegna þess að svona húdd liggja ekki lausu og kosta ný í umboðinu 80-90 þúsund.
Ég skammaði þá í vöku fyrir að fatta ekki hvað þeir voru með þarna í höndunum,þeir gerðu engan greina mun á coupe bílnum og 4 dyra bílnum.
Það væri ráð að fá þá til að láta vita inná spjallið þegar að það koma BMW bílar til niðurrifs þeir eiga víst eitthvað af hlutum í yngri bíla en þetta en eru alveg sofandi yfir því að þeir eru með verðmæti sem liggja ekki á lausu.
Ég held að kjallarinn á móti sé fullur af allskonar varahlutum í hina og þessa bíla.
Það er alveg sama sagan hjá þeim varðandi Benz það gera sér enga grein fyrir því að það vantar altaf eithvað í þá alveg eins og BMW.
Mér er alveg sama um einhverjar daihatsu,mözdur,hunday og fl, druslur og aðra brúks bíla sem renna í gegnum portið hjá Vöku en þegar að það kemur að þýskum eðalvögnum þá finnst mér að þeir eigi aðeins að hugsa.
