Ekkert að því að bösta menn fyrir repost, en sama á við þar og annarstaðar að þessir þræðir og að lokum spjallið endar í tómu rugli ef menn geta ekki lagt stund á gagnkvæma virðingu.
Reyndar hafa komið góð repost, myndbönd eða bílar sem hafa greinilega farið framhjá mér, þrátt fyrir að ég sé daglegur gestur.
Væri ekki ráð að menn myndu venja sig á að skrifa smá lýsingu í t.d. myndbandaþræði eða skrifa aðeins skipulagðara í aðra þærði þannig að "leitin" finni það sem menn leita að, líka þeir sem eru að athuga hvort að þeirra innlegg sé hugsanlega repost.
Þetta myndi gera repost lögreglunni erfiðara fyrir og þ.a.l. yrði repost böst skemmtilegra, meira event. það er lítið gaman að veiða lax úr eldiskví.


