Hvernig er það, á maður að vera hræddur við akstur á þessum drifum, er aðallega að spá í USA drif. Maður er að sjá 4.10 drif úr 325is ekin 120-170 þús mílur(ca 190-270 þús km) að fara á í kringum 250 dollara.
Menn hafa verið að tala um að "klára læsingar" og þvíumlíkt. Er það til í dæminu ef um svona "mikinn" akstur er að ræða?
Steini


