Gylltur eða drapplitur, eða sem sumir kalla kúka-brúnt - hef aldrei fílað þann lit á bílum.
Annars finnst mér sumir bílar geta borið ákveðna liti á meðan aðrir gera það ekki.
Sem dæmi þá er E30 með Euro-red svona ljósrauður koma ágætlega út en E34 finnst mér alls ekki passa með þann lit, ég vil hafa meira vínrautt eða candy-apple red á E34.
Svo með Dökkgræna Toyota Avensis, semsagt fyrra útlitið frá ´98 til ´01 fannst salon koma miklu betur út svona dökkgrænn heldur en station með nákvæmlega sama lit. Þá fannst mér silfur koma betur út á station.
Svo er ég alveg sammála með bláar innréttingar, alveg hræðilegt, finnst þær verða líka svo sjoppulegar með tímanum jafnvel þótt þeim sé haldið við.
Svo er líka litasamsetningin, hef aldrei almennilega fílað eins og bandaríkjamanninum þótti flott fyrir svona 10-15 árum að vera með ljósgráann eða ljósbláann bíl og með rauða innréttingu. En hinsvegar ef þú ert með bílinn metalic svartann eða silfurgráann og með eldrauða innréttingu það er töff.
Einnig hef ég aldrei fílað almennilega svarta eða bláa bíla með ljósbrúna innréttingu eins og bíllinn minn er
Hinsvegar ef þú ert með rauðann bíl og svona ljósbrúna innréttingu, það passar vel saman, alveg ekta Ferrari 355 litasamsetning.
Svo hef ég alltaf verið hrifinn af kóngabláum eða dökkbláum bílum, sérstaklega 5 og 7 línu bmw með ljósgráa leðurinnréttingu.
Held ég sé búinn að röfla nóg núna.