fart wrote:
Bjarkih wrote:
Fyrir þá sem hafa áhuga og nenna að lesa þá er hérna pistill um uptöku evrunar:
http://ragnarna.blog.is/blog/ragnarna/entry/99852/Ragnar Arnalds....

Lesist með fyrirvara. Nóg að lesa nokkrar fyrirsagnir
HÉR til að átta sig á því að þarna eru kanski pínu lítið litaðar "staðreyndir"
BTW nú er í umræðunni að stærsta fyrirtæki landsins í kauphöllinni ætli að skipta alfarið yfir í Evur. Það er þá óumflýjanlegt að önnur sambærileg fyrirtæki geri slíkt hið sama. Það þýðir umskipti upp á yfir 500milljarða króna (geri ráð fyrir að hluti eiginfjár sé nú þegar kominn yfir í evur, sem er að hlutatil opinbert).
Ef þetta gerist sjáum við krónuna fljólega sigla sína leið.. inn í sögubækurnar... sama hvort við gögnum í Evrópusambandið eður ei.
Til gamans þá er krónan okkar góða að veikjast um 2% í dag og 1% í gær.
Ég skal taka annað bet við ykkur. Það verður VINSTRI stjórn næst á Íslandi, verði ykkur að því. Hvernig kemst ég að þeirri hræðilegu niðurstöðu.. jú rökstuðningur.
1. Davíð er eigi lengur í forustu, XD veikara fyrir vikið
2. Halldór er ekki lengur leiðtogi framsóknar og XB að hverfa
3. Downgrade frá S&P á íslenska efnahagsstjórnun
4. ÁJ í framboði fælir fá XD
5. Frjálslindir komnir með öfgahægriskoðanir til að ná í fylgi af XD
6. eftir uppgangsskeið kemur alltaf hningnun.. hún er framundan
Ég óttast að Vinstimenn hafi of mikði af skotfærum til að skjóta í kaf forustu ríkistjórnarforustuna.
Ríkisstjónin verður, Samfyllking, Vinstri grænir og Framsóknarþíngmennirnir 4.
Forsætisráðherra verður Jón Sigurðsson
Fjármálaráðherra Ingibjörn Sólrún eða Össur (take your pick

)
Utanríkisráðherra Steingrímur J

Ég verð að vera ósammála þessari svartsýnisspá.
Davíð er vissulega hættur en það þýðir ekki að íhaldið sé eitthvað veikara fyrir vikið þar sem Geir Haarde er fyrsta flokks leiðtogi og síst óvinsælli en Davíð.
Framsókn virðist vissulega vera að hverfa.
Johnsen á líka sína fylgismenn.
Öfgamenn eru sem betur fer fáir á Íslandi EN hinir flokkarnir verða að mynda sér afgerandi stefnu um innflytjendamál, annars sitja Frjálslyndir einir að þeim atkvæðum.
Vinstrimenn hafa helling af fallbyssukúlum og Ingibjörg Sólrún hefur ekki verið spör á þær undanfarið. Þrátt fyrir það hefur fylgi Samfylkingarinnar lækkað. Fólki finnst hún einfaldlega of neikvæð og leiðinleg. Niðurbrotsmálflutningurinn er orðinn mjög fyrirferðarmikill og ómálaefnalegur hjá henni.
Þeir sem sáu Kryddsíldina á gamlársdag sáu að Ingibjörg og Steingrímur gætu aldrei verið saman í ríkisstjórn, þau nánast rifust um forsætisráðherrastólinn, hálfu ári fyrir kosningar.
Ég segi: Íhaldið og VG verða í ríkisstjórninni næst.
PS. Við skulum ekki gleyma að þegar kemur að kosningum þá eru Íslendingar alltof íhaldssamir.
EDIT: Ef hið hræðilega gerist er ég hinsvegar strax farinn að leita mér að vinnu í DK..