Í gærkvöldi var ég að browsa hinar og þessar síður, torrenta og svona, allt gekk mjög smoothly, öll video á youtube voru mjög snögg að hlaðast inn og allt í gúddi.
En núna um það leiti sem þetta er skrifað er allt að fara til fjandans, ekkert video á youtube spilast nema með þvílíku buffering hökti.
Allar síður eru frekar hægar að hlaðast inn og torrentin eru öll komin úr c.a. 600 kb á sek niður í 100
Ég er í blokk, gæti innra netið verið að fokka þessu upp hjá mér eða er ástæðan sú að ég er langt frá símstöðinni og þeir sem eru nær eru að fá stærri part af bandvíddarkökunni?


