Jæja ég hef ákveðið að að syngja lag fyrir ykkur kæru félagsmenn.
Kjörsonur skrattans er kviðsíður dvelli.
Sem kófdrukkinn tilbiður veraldleg gæði
hann nýtir sér meðvind með margsskonar sprelli
En mótbyrinn framkallar hatur og bræði.
Þá dvergur mín fyrirmynd drykkfeldra þrjóta
Hann dansar í hringi frá 9 til 4
á daginn hann ræðir um ranglátann kvóta
Og riddari tómstundum fánýtar sögur
Og núna er fannturinn frjáls og nú fær hann að taka til máls ef liðið vill berjann þá löggann mun verjann og þá lætur hann sverfa til stáls
Og núna er fannturinn frjáls og nú fær hann að taka til máls. Ef liðið vill berjann þá löggann mun verjann og þá lætur hann sverfa til stáls.
Í tukthúsi var hann á þunglyndi þjáður
Hann þurfti að kúldrast í myrkvuðum grifjum
Og nú er hann afurðum hatursins háður
og hann verður alltaf að vera á lyfjum.
Það furðar víst engann þó að ærlega rjúki
úr eldum sem brenna í helvísku grjóti
Því kjörsonur skrattans er krullhærður PÚKI!
Sem kveikir í öllu sem hann er á móti.
Og núna er fannturinn frjáls nú fær hann að taka til máls. Ef liðið vill berjann þá löggann mun verjann og þá lætur hann sverfa til stáls.
Og núna er fannturinn frjáls nú fær hann að taka til máls. Ef liðið vill berjann þá löggann mun verjann og þá lætur hann sverfa til stáááááálss..
Haffi wrote:Mig vantar nauðsynlega off topic þráð hérna.
Afhverju skrifar þú ekki bara einn þráð undir Almennar umræður sem gæti verið með yfirskriftina "Haffi Offtopic" og bætir svo bara við hann þegar þú þarft.
Það væri mun auðveldara heldur en að búa til nýjar umræður.. þá væri listinn: Almennar umræður, Haffi, Tæknilegar umræður, Áhugaverðir bimmar .....
Ingimar E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)