Bílalán á innflutta bíla *tíhíhí*

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby gstuning » Thu 04. Jan 2007 11:43

Angelic0- wrote:Þetta verður hugsað mikið og pælt áður en að farið verður af stað í leiðangur..

Er einhver þarna úti sem að ég gæti sent í að skoða bílana svo að ég sé ekki að fara í fýluferð?


Það er ekki hægt að plana þetta ,
Ég var hársbreidd frá því að fara til Hamburg árið 2000 og flytja inn minn eiginn bíl, þá var enginn kraftur og ég þekkti engann og talaði ekki þýsku heldur, ég er bara glaður að hafa ekki farið út, það hefði bókað endað í leiðindum.

1400euros er lítið gjald fyrir að láta skoða bílinn úti og double checka og líka sjá um að flytja hann heim,
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby basten » Thu 04. Jan 2007 12:12

Angelic0- wrote:Er einhver þarna úti sem að ég gæti sent í að skoða bílana svo að ég sé ekki að fara í fýluferð?


Smári býr náttúrulega í Hamburg og þú getur prófað að hafa samband við hann.
En auðvitað vill hann fá þóknun fyrir svona vinnu.

smarihamburg@hotmail.com
tel. +49 1703 110 600
Siggi
basten
Getawaybílstjóri
 
Posts: 860
Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Location: Reykjavík

Postby Einarsss » Thu 04. Jan 2007 13:50

Ferðakostnaður, launalaust frí í vinnu, skrifinnska, leiðindi, kannki er bíllinn búðingur og viktor staddur útí rassgati í þýskalandi,þekkir engan, þarft að finna annan bíl asasp og finnur hann kannski en þá mjög líklega ekki eins og þú vilt hafa hann. Þú verður alltaf ósáttur við bílinn af því þetta er ekki eins og þig virkilega langaði í og stress.... :roll:


1400 euro er ekki mikið gjald fyrir að fá t.d Smára að skoða bílinn úti, hann hringir í þig á staðnum, tekur ekki bílinn ef hann stenst ekki þínar kröfur, kemur bílnum úr landi og sendir þér alla pappíra í ábyrgðarpósti og svo bíður þú heima þangað til að skipið kemur ;) ... en auðvitað ef þú ert á leiðinni í 2-3 vikna ferðalag þá er það allt annað mál og hefur nægan tíma í að skoða hlutina í róleg heitunum
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Stanky » Thu 04. Jan 2007 15:08

einarsss wrote:Ferðakostnaður, launalaust frí í vinnu, skrifinnska, leiðindi, kannki er bíllinn búðingur og viktor staddur útí rassgati í þýskalandi,þekkir engan, þarft að finna annan bíl asasp og finnur hann kannski en þá mjög líklega ekki eins og þú vilt hafa hann. Þú verður alltaf ósáttur við bílinn af því þetta er ekki eins og þig virkilega langaði í og stress.... :roll:


1400 euro er ekki mikið gjald fyrir að fá t.d Smára að skoða bílinn úti, hann hringir í þig á staðnum, tekur ekki bílinn ef hann stenst ekki þínar kröfur, kemur bílnum úr landi og sendir þér alla pappíra í ábyrgðarpósti og svo bíður þú heima þangað til að skipið kemur ;) ... en auðvitað ef þú ert á leiðinni í 2-3 vikna ferðalag þá er það allt annað mál og hefur nægan tíma í að skoða hlutina í róleg heitunum


Sammála einarss í þessum málum

Það er samt eitthvað við það að fara út og ná í bílinn sinn, sumum finnst svona "vesen" skemmtilegt og sumir eiga efni á því (þ.e. launalaust frí, etc etc etc). Það má ekki taka það af þeim sem vilja fara út í svona hluti. Svo er líka öruglega endalaust gaman að prufa bílinn úti á Autobahn og keyra hann í skipið.

En eins og áður hefur komið fram að þá er Smári toppgaur að margra mati, hringdi í mig frá bílasölunni og sagði mér allt sem var "að" bílnum sem hann sá og fann fyrir eftir prufurúnt. Ég sagði "ok" og hann sagði "ok" og skellti á, bíllinn kominn í toll 1 og hálfri viku síðar (eða svo) og ég mega sáttur.


kv,haukur
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby JOGA » Thu 04. Jan 2007 15:24

Ég hef í tvígang farið út til DE og sótt mér bíl. Annað skiptið keypti ég af einsktakling og í hitt af bílasölu.

Þetta er nú reyndar ekki alltaf svo flókið en það er alveg rétt að ef að bíllinn uppfyllir ekki væntingar þá getur þetta skapað vandamál. Besta leiðin hjá því er að vera ekki að skoða allra ódýrustu bílana og stundum borgar sig líka að sleppa bílum sem eru "grunsamlega" lítið eknir eða grunsamlega ódýrir.

Þú þarft að vera með það alveg á hreinu hvar bíllinn er. Best er að mínu mati að finna bíl nálægt þeim stöðum sem Iceland Air flýgur til. Ég hef í bæði skiptin keyrt bílana til Hollands og látið Atlantskip flytja bílinn heim. Verið hagstæðara fyrir mig.

Í annað skiptið fór ég svo heim frá Amsterdam en hitt tók ég smá skottúr til London og verslaði með konunni.

Þú þarft að gera ráð fyrir gistingu í lágmark 2 nætur (náði því í seinna skiptið).

Það sem þetta gengur annars út á er að fara og versla þér tryggingu á bílinn eftir að þú hefur sæst um ástand og verð. Fara þá í eins konar skráningarstofu (man ekki þýska nafnið í augnablikinu). Þar gengur þú frá eigendaskiptunum og skráir bílinn úr landinu (klipt er á skráningarskírteini og svoleiðis). Svo er venjulega verslun rétt hjá sem selur númer á bíla. Þangað ferðu og kaupir útflutningsnúmer. Til þess að fá þau þarftu fyrrnefnda tryggingu. Þetta gefur þér aksturheimild í öllum helstu ríkjum í Evrópu í ca. mánuð minnir mig.

Í bæði skiptin fékk ég hjálp frá seljandanum við þetta. Kannski eitthvað smávægilegt sem ég gleymi. Man t.d. ekki alveg hvort ég hafi farið aftur inn í skráningarstofuna eftir að ég var kominn með númerin. Held ekki. :wink:

En þetta er alls ekki ógerlegt. Mjög skemmtilegt líka og maður getur verið snöggur að þessu. Ég til dæmis fann í annað skiptið bíl á Laugardegi og var farinn út á fimmtudegi, heim á laugardegi og bíllinn kominn á númer ca. 2 vikum seinna.

Ef þér vantar ráðleggingar þá máttu skjóta og ég skal reyna að svara.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 27 guests