Fyrst eru myndir af hetjunni Fróða, heimiliskettinum. Þetta eru fyrstu áramótin sem hann er ekki inn í skáp eða undir rúmi meðan að lætin og sprengingarnar eru á gamlárskvöld.
Nú gerði hann sér lítið fyrir og lá fyrir framan sjónvarpið og fylgdist með flugeldunum.
Þó er nú kannski smá ótti í augunum í byrjun:
Svo fer hann að vera aðeins betri með sig og fylgist með látunum:
Og svo eru sumir orðnir bara afslappaðir með þetta allt saman og fá sér lúr:
(tók þessar 3 myndir bara með "available light" þe. bjarmi frá sjónvarpi og smá týra frá jólaseríu)
Svo eru hér 2 myndir frá Kleifarvatni í gær - var helvíti skemmtileg birta seinnipartinn:
Endilega póstið sniðugum jóla/áramótamyndum.






