Sælir
Tók eftir því eftir rigningu um daginn að klæðningin á innanverðri topplúgunni hjá mér var blaut. Þetta var ekki það mikið að það lak en nóg til að það sást að áklæðið á lúgunni var blautt. Er þetta eitthvað sem einhver kannast við, ég hef ekki tekið eftir leka eftir það en þetta er ekki ennþá orðið þurrt.
Það er eflaust vika síðan ég sá þetta fyrst. Þetta er E39 523.


