Hvað kostar að taka upp vél??

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Hvað kostar að taka upp vél??

Postby Schulii » Wed 16. Jul 2003 20:07

Það er eitt sem mig langar að spyrja ykkur að hérna:

Hvað kostar að taka upp vél??

Þ.e.a.s ef maður lætur gera það á verkstæði.. svo eru kannski einhverjir hér sem myndu vilja gera tilboð þegar eða EF að því kæmi.. :)

Ég vill taka það fram að það er ekkert sem bendir til þess að ég þurfi að gera það núna en auðvitað kemur að því einhverntímann og þá er gott að taka það með í reikninginn þegar maður er að spá í hvort maður eigi að selja eða ekki.
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby oskard » Wed 16. Jul 2003 20:52

Hvað er bílinn þinn keyrður mikið ?
oskard
 

Postby Schulii » Wed 16. Jul 2003 20:57

238k ..ég veit ekki til þess að hann hafi verið tekinn upp en þessi bíll hefur verið með nokkra eigendur þannig að ef einhver veit betur þá...!!
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby Atli Camaro » Thu 17. Jul 2003 21:34

Sæll

Kostnaður við uppgerð fer algjörlega eftir hversu mikið er ónýtt og hvað þarf að gera.Talaðu við eitthvert verkstæði og biddu um grófa verðáætlun,það er aldrei hægt að gera nákvæma áætlun.Ég mæli með Kistufelli Tangarhöfða 13
Atli Camaro
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 70
Joined: Tue 14. Jan 2003 14:50

Postby Schulii » Thu 17. Jul 2003 22:12

ok takk fyrir.

En segjum að t.d það yrði skipt um heddpakkningu, heddið planað, skipt um ventlafóðringar, stimpilhringi, stangarlegur.. er þetta ekki svona þetta venjulega.. er þetta ekki alltaf að fara í svona 300.000 lágmark??
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby rutur325i » Fri 18. Jul 2003 03:04

veit nú ekki alveg með 300,000 kallin :roll:
Renault 19 '95 - bráðabirgða
BMW E-30 325i; IM-870, Farinn
BMW E-30 320i; IR-406, Seldur
rutur325i
Getawaybílstjóri
 
Posts: 589
Joined: Tue 15. Oct 2002 14:44
Location: Grafarvogur

Postby íbbi_ » Fri 18. Jul 2003 05:16

ég lét taka upp úrbræddan 1600cc mótor hjá kistufelli, það voru smíðaðar í hann legur, renndur ásin, nýjir hringir+stangir, og svo margt annað 300k
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby arnib » Fri 18. Jul 2003 09:50

Það hlýtur að vera töluvert ódýrara að taka upp mótor
sem er ekki úrbræddur eða skemmdur,

heldur en að taka upp mótor sem hefur farið í köku útaf
slitinni tímareim eða eitthvað?

Eða hvað? :)
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby rutur325i » Mon 21. Jul 2003 04:12

einmitt , ég held það líka
Renault 19 '95 - bráðabirgða
BMW E-30 325i; IM-870, Farinn
BMW E-30 320i; IR-406, Seldur
rutur325i
Getawaybílstjóri
 
Posts: 589
Joined: Tue 15. Oct 2002 14:44
Location: Grafarvogur


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests