E46 startara vesen

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

E46 startara vesen

Postby Höfuðpaurinn » Wed 06. Dec 2006 11:25

Sælir,
félagi minn er með E46 bíl með 1900 vélinni.

þannig er mál með vexti að startarinn er að klikka, sem lýsir sér í því að oftast þegar hann er að reyna að starta bílnum heyrist bara *click*click* í startaranum og ekkert gerist, það kviknar á öllum ljósum í mælaborðinu og útvarpinu, þannig að sambandsleysi er ólíklegt. Þarf oft milljón tilraunir til að koma bílnum í gang. Hann er bestur í gang þegar það er kalt og bíllinn kaldur.

Einhvar minntist á það við hann að prófa að skipta um kol í startarnum, er það líkleg lausn (og þá jafnvel DIY leiðbeininginar)?
E36 325ia 1993 (seldur)
E34 520i 1992 (seldur)
og eitthvað af öðru dóti
Höfuðpaurinn
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 356
Joined: Tue 11. Jan 2005 11:01

Postby íbbi_ » Wed 06. Dec 2006 11:31

prufaðu að banka í punginn á startaranum (segulrofan) með t.d framlengingu á skrall, eða átaksskapti, ef hann tekur start eftir það þá er pungurinn farinn,

kolin eru mjög líkleg myndi frekar tæta hann úr og láta skipta um þau bara.. kostar smáaura
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Höfuðpaurinn » Wed 06. Dec 2006 15:24

íbbi_ wrote:prufaðu að banka í punginn á startaranum (segulrofan) með t.d framlengingu á skrall, eða átaksskapti, ef hann tekur start eftir það þá er pungurinn farinn,

ertu ekki að meina nr. 4 á myndinni?
Image

íbbi_ wrote:kolin eru mjög líkleg myndi frekar tæta hann úr og láta skipta um þau bara.. kostar smáaura


láta skipta um þau eða skipta um þau sjálfur?

Takk fyrir hjálpina.
E36 325ia 1993 (seldur)
E34 520i 1992 (seldur)
og eitthvað af öðru dóti
Höfuðpaurinn
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 356
Joined: Tue 11. Jan 2005 11:01

Postby íbbi_ » Wed 06. Dec 2006 15:29

pungzið er númer quadro á myndini já,

ég persónulega léti bara skipta um þau fyrir mig, ekkert mál svosum en sumt nennir maður ekki að standa í þegar það kostar bara smáaura að láta gera fyrir sig,

mæli með að þú hringir í bílaraf, hann er algjör snillingur í sona tálgar út kol með vasahníf og læti
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 19 guests