Ók ölvaður inn á flugvélaplanið á Keflavíkurflugvelli

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Ók ölvaður inn á flugvélaplanið á Keflavíkurflugvelli

Postby Aron Andrew » Tue 05. Dec 2006 12:23

Ölvaður ökumaður, sem var seinn fyrir í flug til útlanda í morgun, ók á fullri ferð í gegnum háa girðingu við Leifsstöð og inni á flugvélaplanið með fjóra lögreglubíla á hælunum. Þar stökk hann úr úr bílnum og ætlaði að hlaupa um borð í næstu vél þegar lögreglumenn hlupu hann uppi og handtóku hann umsvifalaust.

Upphaflega reyndi lögreglan úr Keflavík að stöðva hann á Reykjanesbraut þar sem hann hafði mælst á allt of miklum hraða en hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum og stakk af. Fjórir löreglubílar voru svo að nálgast hann úr öllum áttum þegar hann lét vaða í gegnum girðinguna. Mildi þykir að hann skyldi ekki hafa ekið á flugvél. Hann gistir nú fangageymslur og verður yfirheyrður í dag.


Þetta hélt ég að væri bara eitthvað sem gerist í bíómyndum :lol:
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby gstuning » Tue 05. Dec 2006 12:24

já, þetta er akkúrat eitthvað svoleiðis,

ekki hélt gaurinn í alvöru að flugvélin myndi bjarga honum bara frá löreglunni,
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby bjahja » Tue 05. Dec 2006 12:29

Sé hann fyrir mér hoppa uppí flugvél og fljúga af stað með lögguna hlaupandi á eftir :lol:
En þetta er ótrúlega fyndið......greinilega ekki bjartasta kertið á kökunni
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby IngóJP » Tue 05. Dec 2006 12:36

snilldin ein
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Ekki ölvaður

Postby JonHrafn » Tue 05. Dec 2006 12:43

Af www.vf.is

Fréttir | 5. desember 2006 | 12:03:50
Ók inn á flugverndarsvæði: Á við geðræn vandamál en ekki ölvaður
Maður sem var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í morgun eftir að hann hafði ekið inn á flugverndarsvæði með því að aka í gegnum girðingu flugstöðina var ekki undir áhrifum áfengis eins og vf.is hafði eftir frétt á Vísir.is í morgun. Maðurinn á hins vegar við geðræn vandamál að stríða og er á lyfjum vegna þeirra. Hann er nú í haldi lögreglunnar í Keflavík þar sem hann verður yfirheyrður.

Lögreglan veitti manninum fyrst eftirtekt í morgun þegar hann ók framúr lögreglubíl á Reykjanesbraut á talsverðum hraða. Mestur var hraði bílsins mældur rúmlega 140 km./klst. Við Grindavíkurveg mældist bíllinn á 120 km. hraða en hámarkshraði þar er 50 km. vegna framkvæmda á svæðinu.

Nokkrir bílar lögreglunnar tóku þátt í að reyna að stöðva manninn í morgun. Maðurinn ók öfugt í hringtorg við Rósaselstjarnir og setti stefnuna á Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Við flugstöðina ók maðurinn yfir sandhrúgu og í gegnum öryggisgirðingu og inn á flugverndarsvæðið. Bifreiðina stöðvaði hann síðan við landgang nr. 5 þar sem hann hljóp upp stiga á landganginum. Þar var maðurinn handtekinn og fluttur á lögreglustöðina í Keflavík.

Fljótlega var ljóst að maðurinn var sjúkur og var haft samband við aðstandendur sem upplýstu um ástand mannsins. Hann er eins og áður segir í haldi lögreglunnar í Keflavík sem yfirheyrir hann. Maðurinn hefur réttargæslumann.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Postby Einarsss » Tue 05. Dec 2006 12:50

ég hefði verið til að vera horfa út um glugga í leifsstöð og sjá þennan svaka eltingarleik :shock:
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Kristjan » Tue 05. Dec 2006 13:07

Hummmmm það er ekkert talað um hvernig bíl hann var á, væntanlega ekki verið á BMW......
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby Arnarf » Tue 05. Dec 2006 13:09

Kristjan wrote:Hummmmm það er ekkert talað um hvernig bíl hann var á, væntanlega ekki verið á BMW......


Og greinin hefði örugglega verið orðuð allt öðruvísi hefði hann verið á BMW
User avatar
Arnarf
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 827
Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48

Postby Kristjan » Tue 05. Dec 2006 13:26

Kannski eitthvað á þessa vegu...

"Brjálaður geðsjúklingur á helsurtuðum BMW sportbíl reyndi að myrða flugvallarstarfsmenn og stinga lögguna af í ofsafengnum eltingaleik til að sleppa til útlanda með fíkniefni bla bla bla bla"
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby Deviant TSi » Tue 05. Dec 2006 14:13

Kristjan wrote:Kannski eitthvað á þessa vegu...

"Brjálaður geðsjúklingur á helsurtuðum BMW sportbíl reyndi að myrða flugvallarstarfsmenn og stinga lögguna af í ofsafengnum eltingaleik til að sleppa til útlanda með fíkniefni bla bla bla bla"


:lol: :lol:
User avatar
Deviant TSi
Kassabílstjóri
 
Posts: 214
Joined: Fri 04. Jun 2004 11:42
Location: Undir rúminu þínu..

Postby krullih » Tue 05. Dec 2006 14:57

:roll: Guð minn góður, eru í alvöru allir kraftslimir svona bitrir að BMW er annálaður glæpona bíll ?

It's life...hættið að velta ykkur uppúr þessu endalaust :S
User avatar
krullih
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 469
Joined: Mon 13. Sep 2004 18:02

Postby Einarsss » Tue 05. Dec 2006 15:03

eitt gott koment sem félagi minn sagði um svarta nýja e34 525i bílinn sinn... "ég gæti selt kíló án þess að reyna það"
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby Gunnar Þór » Tue 05. Dec 2006 15:09

Kristjan wrote:Kannski eitthvað á þessa vegu...

"Brjálaður geðsjúklingur á helsurtuðum BMW sportbíl reyndi að myrða flugvallarstarfsmenn og stinga lögguna af í ofsafengnum eltingaleik til að sleppa til útlanda með fíkniefni bla bla bla bla"


Helsurtuðum :lol: :lol: :lol:
MY2002 E46 330d Touring - Mr.X remap
User avatar
Gunnar Þór
Kassabílstjóri
 
Posts: 205
Joined: Sat 12. Aug 2006 19:59
Location: Hafnarfjörður

Postby Thrullerinn » Tue 05. Dec 2006 15:11

krullih wrote::roll: Guð minn góður, eru í alvöru allir kraftslimir svona bitrir að BMW er annálaður glæpona bíll ?



Þetta er bitur staðreynd!

Smokey and the bandit!, eitthvað slegið saman hjá greyið manninum :?
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby IngóJP » Tue 05. Dec 2006 15:32

krullih wrote::roll: Guð minn góður, eru í alvöru allir kraftslimir svona bitrir að BMW er annálaður glæpona bíll ?

It's life...hættið að velta ykkur uppúr þessu endalaust :S


Frekar þreytt bara... Má ekki lýta framhjá því margir strákar sem vilja kaupa sér BMW hefur neitað um það af foreldrum útaf þetta eru glæpamannabílar
:lol:

var að vinna með einum þannig í sumar
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 67 guests