Heheh, ekkert heimskulegt sagt.... Ennþá allaveganna!
Það fer nú eiginlega eftir hverju þú ert að sækjast eftir hvað er mest gáfulegt.
Þristarnir 3xx eru langvinsælastir hjá yngra fólkinu og bílar upp að svona 88 módelinu ættu að passa inn undir verðramman hjá þér. En þú getur líka fengið fimmur 5xx á sama reiki. Sjöurnar eru mjög fáar eftir eldri en 87 módel og þær finnast ekki undir 400 þús að ég held.
4cyl 316i 318i og 518i er best hvað varðar bensíneyslu, en stærri bílarnir með 6cyl eru skemmtilegri....
Það fer mikið eftir því eftir hverju þú sækist.
Þristarnir (E30 83-91) eru eins og sæmi sagði vinsælir hjá yngra fólkinu (enda er það nánast eina línan sem hann á ekki ) Þeir eru líka minnstir og sportlegastir.
Fimmurnar (E28 81-88(?)) eru frekar stórir krúserar, gott að sitja í þeim og keyra þá. Geta verið sportlegir.
Sjöurnar (E23 77-87) eru fokking stórar, flekar dauðans.
Síðan fer vélarstærðin einfaldlega eftir því hvort þú vilt bensín sparnað eða kraft (og verð náttúrulega líka)
Það er bara skotið á okku þroskuðu mennina hér hægri og vinstri
Ég er nú jafn gamall og Sæmi og samt á þrist, meira að segja tveggja dyra - ég held að lang bestu kaupin hljóti að vera í fimmunum, þristar eru miklu dýrari og mikið meiri eftirspurn með þeim. Það er heldur ekki hæpið að ímynda sér að fimmur hafi fengið betri meðferð yfir sitt æviskeið...
Svo á Sæmi nú væntanlega tvo bíla til að selja þér sem báðir eru mjög góðir, annar á 170 þús og hinn á 220 þús... kíktu á söludálkinn!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road