Bilað útvarp

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Bilað útvarp

Postby e_b » Fri 01. Dec 2006 15:25

Sælir,

Nú hefur útvarpið í bílnum mínum verið til vandræða í soldin tíma (átti það til að detta út, og ég varð að aftengja rafgeyminn til að ná því í lag aftur). Nú er það þannig að ef ég hækka allt í botn þá heyri ég tónlist en ef ég hef útvarpið stillt á eðlilegum styrk þá heyrist ekkert nema bjögun.

Skilaboðin frá B&L eru sú að það þurfi líklega að skipta út útvarpinu í heild sinni og það verður líklega dýr pakki!

Hafið þið einhverja hugmynd um hvað gæti valdið og hvort hægt sé að laga svona án þess að skipta bara út tækinu?

Nb, þetta er E39 M5, 2003 módel.

Kv.
E_B
e_b
Kassabílstjóri
 
Posts: 107
Joined: Fri 17. Feb 2006 18:14

Postby íbbi_ » Fri 01. Dec 2006 15:34

þetta finnst mér dáldill galli við mælaborðin í E39 og E38, ef það bilar þá þarf alltaf bara að skipta út hálfu mælaborðinu, mistöðin hjá mér er dauð út af smá prentplötu og ég þarf að fá alla eininguna, stundum get ég ekki skipt um stöð á útvarpinu og ég þarf að skipta um alla servotronic tölvuna
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby e_b » Fri 01. Dec 2006 15:49

Já, þetta er VERULEGUR galli! Á endanum verða þessir bílar einnota, um leið og þú klárar bensínið þá þarftu að kaupa nýjan bíl!

En nú hefur maður nú átt marga magnara og svoleiðis í gegnum tíðina og ég hefði nú viljað sjá verkstæðin þar segja manni að magnarinn sé ónýtur út af því að eitthvað unit í honum er bilað.


- E
e_b
Kassabílstjóri
 
Posts: 107
Joined: Fri 17. Feb 2006 18:14

Postby Jonni s » Fri 01. Dec 2006 21:29

Ég lenti í þessu nákvæmlega sama.
Það var nóg að losa plöggin sem ganga inná magnarann og setja þau aftur í. Ekki klikkað síðan. Var búinn að heyra sömu söguna hjá B&L. "Komdu með bílinn og skildu eftir annað nýrað og lifrina" var svarið sem ég fékk frá þeim.
Þetta er bara blær, blíður og vær.
Jonni s
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 354
Joined: Thu 26. Feb 2004 11:19
Location: Skagaströnd

Postby e_b » Sat 02. Dec 2006 14:19

Það væri nú áhugavert að prófa að unplugga magnaranum og sjá hvort það lagi þetta.

Hvernig fer ég að því (þ.e.a.s. hvar er magnarinn og hvernig kemst ég að þessum plöggum)?


Kv.
E_B
e_b
Kassabílstjóri
 
Posts: 107
Joined: Fri 17. Feb 2006 18:14

Postby Jonni s » Sat 02. Dec 2006 21:45

Hann er í bílstjórahlið skottsins væntanlega. Fer samt svolítið eftir búnaði bílsins held ég. En kíktu samt þangað.
Þetta er bara blær, blíður og vær.
Jonni s
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 354
Joined: Thu 26. Feb 2004 11:19
Location: Skagaströnd

Postby Hlynzi » Sun 03. Dec 2006 03:35

Ef allt annað bregst myndi ég fara á rafeinaverkstæði rétt hjá skútuvoginum, (gatan fyrir neðan bílaleiguna) man ekki hvað það heitir í augnablikinu, þeir geta örugglega reddað þessu á sanngjörnum prís.
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla
Hlynzi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 586
Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Location: Grafarvogur

Postby Arnarf » Sun 03. Dec 2006 06:51

Hlynzi wrote:Ef allt annað bregst myndi ég fara á rafeinaverkstæði rétt hjá skútuvoginum, (gatan fyrir neðan bílaleiguna) man ekki hvað það heitir í augnablikinu, þeir geta örugglega reddað þessu á sanngjörnum prís.


Skútuvogur er hjá húsgagnasmiðjunni og öllu því.

Bílaleigan er í Knarrvogi.

Þetta verkstæði sem er þú ert að tala um er í Súðavogi.
User avatar
Arnarf
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 827
Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48

Postby IngóJP » Sun 03. Dec 2006 14:57

Knarravogi 2 Til að vera 100%

Verstu leigjendur sem hægt er að hafa :lol:

Taka svo mikið pláss
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby Jón Ragnar » Sun 03. Dec 2006 15:23

IngóJP wrote:Knarravogi 2 Til að vera 100%

Verstu leigjendur sem hægt er að hafa :lol:

Taka svo mikið pláss


Eruð útum allt þarna :lol:



Sakna matsins þarna :?

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Postby IngóJP » Sun 03. Dec 2006 18:37

Jón Ragnar wrote:
IngóJP wrote:Knarravogi 2 Til að vera 100%

Verstu leigjendur sem hægt er að hafa :lol:

Taka svo mikið pláss


Eruð útum allt þarna :lol:



Sakna matsins þarna :?


Já slæmt að missa Palla kokk og Jón ég er hinumeginn einn af eigendum húsins ekki leigjandi :lol:

er mér hjartansmál þar sem þessi bílaleiga fer í mig
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby e_b » Mon 04. Dec 2006 19:08

Jæja, tók mig til og skoðaði aftan í skott. Sá þrjú box þar. Eitt var merkt sem ULF Module, annað er DVD drifið fyrir navigation dótið, og svo eitt annað box sem ég gat ekki séð neina merkingu á (aðstaðan var að vísu léleg og lítil birta).

Prófaði að ýta við einhverjum snúrum og athuga hvort eitthvað væri laust, en gat ekki séð að svo væri.

Prófaði svo að fikta aðeins í útvarpinu og tók þá eftir einu. Ef ég lækka bassann niður í ekki neitt þá fer ég að heyra hljóð (bjögunin lækkar það mikið að ég get hlustað á það sem sagt er í útvarpinu).

Eins og áður þá er engin bjögun ef ég hækka volumið í botn.

Annað líka. Ef ég prófaði að stilla styrkinn á navigation röddinni þá mutaðist hljóðið frá útvarpinu og einhver kvenmannsrödd byrjaði að tala (svo maður heyri hve hátt þetta er stillt) og þar var engin bjögun.



Kv.
E_B
e_b
Kassabílstjóri
 
Posts: 107
Joined: Fri 17. Feb 2006 18:14

Postby Hlynzi » Mon 04. Dec 2006 20:55

e_b wrote:Jæja, tók mig til og skoðaði aftan í skott. Sá þrjú box þar. Eitt var merkt sem ULF Module, annað er DVD drifið fyrir navigation dótið, og svo eitt annað box sem ég gat ekki séð neina merkingu á (aðstaðan var að vísu léleg og lítil birta).

Prófaði að ýta við einhverjum snúrum og athuga hvort eitthvað væri laust, en gat ekki séð að svo væri.

Prófaði svo að fikta aðeins í útvarpinu og tók þá eftir einu. Ef ég lækka bassann niður í ekki neitt þá fer ég að heyra hljóð (bjögunin lækkar það mikið að ég get hlustað á það sem sagt er í útvarpinu).

Eins og áður þá er engin bjögun ef ég hækka volumið í botn.

Annað líka. Ef ég prófaði að stilla styrkinn á navigation röddinni þá mutaðist hljóðið frá útvarpinu og einhver kvenmannsrödd byrjaði að tala (svo maður heyri hve hátt þetta er stillt) og þar var engin bjögun.



Kv.
E_B


Þetta er eitthvað skemmtilegt invortis, ég giska á transistor eða því sem næst.
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla
Hlynzi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 586
Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Location: Grafarvogur

Postby e_b » Mon 04. Dec 2006 21:17

Furðulegt samt að navigation kellingin var alveg óbjöguð, en allt annað hljóð var bjagað (á þeim styrk sem ég var með þetta á).

Annars þekki ég ekki svona dót þannig að hvað veit ég :)

Þigg allar hugmyndir og ábendingar.


Kv.
E_B
e_b
Kassabílstjóri
 
Posts: 107
Joined: Fri 17. Feb 2006 18:14

Postby e_b » Tue 05. Dec 2006 12:31

Eitt í viðbót.

Ef ég kveiki á útvarpinu þá get ég ekki slökkt á því aftur (ef bíllinn er í gangi þ.e.a.s.). Þ.e.a.s. það slökknar á því (ljósið fer) en eftir svona 5 sekúndur byrja ég að heyra þessa bjögun úr hátölurunum.

Eina leiðin til að þagga í því eftir það er að hafa kveikt á því og hafa volumið í lægstu stillingu (eða drepa á bílnum og starta honum aftur).


Kv.
E_B
e_b
Kassabílstjóri
 
Posts: 107
Joined: Fri 17. Feb 2006 18:14


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 19 guests