SE wrote:Hvaða viðkvæmni er þetta varðandi "Gestur" innlegg á síðuna. Ég verð að segja að ég er sammála bebecar varðandi þetta mál.
Í mínu tilviki þá hef ég verið að fylgjast með síðunni undanfarnar vikur sem gestur ekki innskráður notandi. Ég skráði mig núna til að geta lagt orð í belg en það eru örugglega einhverjir sem nenna ekki að skrá sig og hætta að fylgjast með.
Það er bara allt í lagi að fá innlegg og umræður frá nafnlausum gestum um hin og þessi mál. Veit ekki betur en það hafi stundum spunnist skemmtilegar umræður út frá gestainnleggjum.
Þú hefur fylgst með síðunni undanfarnar vikur sem gestur já, og allt er í góðu með það. Þú getur áfram gert það.
Núna aftur á móti langar þig til að gefa þína skoðun á einhverju
og þá er um að gera að gera það undir nafni
Ég efast um að neinn hætti að nenna að "fylgjast með" síðunni, því
að það fólk þarf ekki að skrá sig.
Fínt auðvitað að fá skoðanir fleira fólks á þessu, en það voru flestir
á því að loka á þetta.