Innlent | mbl.is | 30.11.2006 | 07:04
Mældist á 201 km hraða á Reykjanesbrautinni
Lögreglan í Keflavík mældi, rétt fyrir klukkan þrjú í nótt, svarta BMW bifreið á 201 km hraða á Reykjanesbraut við enda tvöföldunarinnar vestan megin en hámarkhraði þar er 90 km. Bifreiðinni var ekið í vesturátt og gáfu lögreglumenn ökumanninum merki, með bláum aðvörunarljósum lögreglubifreiðarinnar, um að stöðva. Ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu heldur hélt áfram á ofsahraða.
Lögreglumenn hófu eftirför en hættu henni nokkru síðar þar sem þeir misstu sjónar af bifreiðinni. Lögreglu bárust nokkrar vísbendingar um bifreiðina og er unnið að rannsókn málsins.




