Þið hérna sem stundið líkamsrækt, hvar gerið þið það og af hverju þar?
Og þá er ég að meina hvaða stöð eins og t.d. Sporthúsið, W.C. etc...
Og eitt annað.. þið sem æfið íþróttir.. hvað eruð þið að æfa?
Ekkert sem liggur að baki... bara forvitinn
Gunni wrote:Ég er í Sporthúsinu. Finnst fínt að vera þar af því að stöðin er temmilega stór,
ekki mega mega eins og í laugum. Svo spilar líka inní að ég spila skvass
og í Sporthúsinu er aðstaða til þess. Einnig er verðið mjög hagstætt hjá þeim
m.v. WC.
Svezel wrote:ég er hjá isf og fer til skiptis í sporthúsið og þrekhúsið
ég er þar því þeir voru með hagstæðustu árskortin og það er stutt fyrir mig að fara í þrekhúsið

Valdi- wrote:Nokkrir punktar um Sporthúsið...
1. MK og Sportó gerðu samning og núna er allt fullt af littlum tilneyddum krökkum þarna sem annaðhvort fylla öll tæki borandi í nefið eða eru með læti.
2. Tónlistin þarna er mesta sorp sem þú finnur, þeas. nema að þú sért alveg flaming og dýrkir Scooter og trance sull. Þarft semsagt að eiga iPod eða lifa við rosalegar kvalir.
3. Tækin eru jú ágæt, þung handlóð og svona.
4. Power hornið er allt í lagi.
5. Gufurnar og Potturinn er stór plús.
6. Sturturnar eru lélegar nema að þú farir í sturtuklefann næst pottinum.
7. Mér persónulega finnst alltaf skítugt þarna inni og að flestir skáparnir séu bara ónýtir.
Ég var búinn að vera þarna í heilt ár og bara gafst endanlega upp um daginn, sagði upp kortinu.
Þetta eru allt mínar skoðanir af sjálfsögðu og má vel vera að einhver fýli þennan stað alveg í ræmur og þá er það bara hans mál
Users browsing this forum: No registered users and 10 guests