Drykkur með bragði af grænum baunum brátt framleiddur

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Drykkur með bragði af grænum baunum brátt framleiddur

Postby ValliFudd » Wed 22. Nov 2006 09:39

http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1236538
Image
Bandaríski gosdrykkjaframleiðandinn Jones Soda ætlar að hefja framleiðslu á drykk með bragði af grænum baunum. Fyrirtækið hefur áður framleitt drykki með óvenjulegu bragði, þar á meðal af ,,fiski-taco" og laxi. Af öðrum bragðtegundum má nefna kalkún með sósu, spergilkál og sætar kartöflur. ,,Grænbaunagosið" er hluti af ákveðinni framleiðslulínu sem nefnist ,,ferðapakkinn".

Talsmaður Jones Soda, Peter van Stolk, segir þessa óvenjulegu drykki seljast hratt upp. Sjálfur geti hann ekki drukkið þá og skilji ekki hvernig aðrir geti það. Það sé þó öruggt mál að Coca Cola og aðrir gosdrykkjarisar muni ekki framleiða jafnóvenjulega vöru. Van Stolk segir bragðtegundamörkin sett við karrí-kjúkling, menn hafi verið sammála um að það væri hreinlega rangt að framleiða drykk með slíku bragði. Sky segir frá þessu.


say whaaat? :lol:

Já.. allt í lagi.. framleiðum drykk með bragðinu "kalkúnn með sósu" og "grænar baunir" en setjum samt mörkin við "karrí-kjúkling", það er of langt gengið :?: :!: :?: :lol:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby ta » Wed 22. Nov 2006 09:51

hvað með þessa súpu :D
Image
'BMW, designed by Germans, driven by tossers' J.C.
User avatar
ta
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1376
Joined: Tue 12. Aug 2003 21:45

Postby Lindemann » Wed 22. Nov 2006 15:12

Þær eru margar sem myndu ekki slá hendi á móti þessari súpu!
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 35 guests

cron