Er með 02.95 320i þ.e. bíll sem var með M52 ODB-II vél.
Búinn að setja í þennan bíl M50TUB25 ODB-I vél úr 325i 10.94.
Fyrst gerðist ekkert þegar ég startaði bílnum. Þá kom í ljós eftir eitt símtal að í bílnum er ræsivörn sem heitir EWS, það þarf að starta bílnum með rétta lyklinum og motronic tölvan þarf að fá merkið frá lyklinum til að vélin fari í gang.
Búinn að tengja framhjá EWS boxinu þannig að núna startar bíllinn þ.e. startarinn snýr vélinni. En vélin vill ekki fara í gang.
Búinn að prófa tvo lykla, EWS boxið er tengt í bílinn. Tölvan fær rafmagn en gefur ekki neista og bensíndælan fer ekki í gang.
Tölvan sem fylgir ODB-I vélinni sem er í bílnum núna er Bosch Motronic 413 með rauðum miða þ.e. tölva úr bíl sem var ekki með EWS.
Ég er búinn að gera slatta af mælingum, lesa fullt um þetta á netinu ásamt því að skoða raflagnateikningar og pæla mikið í þessu.
Það sem ég skil ekki er af hverju þetta fer ekki í gang þar sem ég "læt" ODB-I non EWS vélina og þann tölvubúnað sem henni fylgir fá allt það sem þetta þarf að fá. Vélin tengist rafkerfi bílsins bara í gegnum hringlaga plöggið ásamt því að fá jörð og straum. Það sem ég held að vélin þurfi að fá í gegnum hringlaga plöggið er rafmagn á tölvuna og signal á startarann til að starta.
Svo gefur tölva vélarinnar eða skynjarar merki í mælaborðið: snúngshraða, hita kælivökvans, hleðsluljós, olíuþrýsting og e-ð fleira sem ég held að skipti ekki máli.
Ef menn hafa e-r ráð eða hafa verið að swappa í e36 og nýrra þá eru allar upplýsingar vel þegnar.
Þetta er bíllinn sem Angelic0 (Viktor) á, bíll sem ég flutti inn á sínum tíma.
Það stendur slatti um þetta á netinu og ég er búinn að lesa mikið en það eru mjög fáir sem fara þessa leið þ.e. setja ODB-I í bíl sem var með ODB-II. Áður en ég byrjaði las ég samt um þetta og fann nokkra sem höfðu gert þetta án vandamála en svo kom þetta EWS vandamál sem er að gera mig gráhærðan.



