Lenti í því að það var keyrt á 316i E30 sem ég átti og stungið af,,, ég sá þetta gerast og hljóp út til þess að ná númerinu á bílnum en sá ekki nema part af því,,, Sá hinsvegar bíltegund greinilega og hann hafði skilið eftir nóg af pörtum á götunni,,, þannig ég fór bara og lét prenta út alla þá bíla sem voru í þessum lit og útfærslu,,, komu 18 bílar til greina,,, ég tók rúnt eitt kvöldið og bingó,,, fann bílinn og tók bunka af myndum af honum og kærði til lögreglu,,, það tók lögguna smá tíma að græja þetta en ég vann þetta og fékk bílinn borgaðan út og mátti eiga hann,,, þannig 40 þús. kr. bíll endaði í 100 þús. hjá mér sem vara bara í lagi
