Bíllinn hjá mér vildi ekki fara í gang einn daginn.
Það koma eftirfarandi skilaboð í mælaborðinu: "oeldruck sensor, betriebsanleitg"
Ég er búinn að leita í gegnum Google og hér á spjallinu en hef ekki fundið neitt sem gagnast almennilega. Þó tel ég að þetta sé skynjari aftan á ventlalokinu. Flestar síður um þetta á Google eru á rússnesku eða samb. tungumáli.
Væri alveg magnað ef einhver hérna vissi meira um þetta.



