Ég er á báðum áttum á ég að fara út í M-tech 2, finst það mjög flott en finst samt orginal look´ið líka mjög flott ef bíllinn er á breiðum felgum og dekkin standa mikið út úr brettunum niður við síls. Svo finst mér iS lip´ið + 2 kæliraufar í svuntunni flott.
Ég sagði mtech II VEGNA ÞESS að mér finnast sílsarnir og aftursvuntan flottari þannig. HINSVEGAR finnst mér orginal framsvuntan ekkert síðri og mtechII spoilerinn finnst mér hreint og beint ljótur.
Þannig að það er eiginlega bæði og hjá mér. Svo skiptir auðvitað mestu máli hvað þér finnst flottast.
Það er líka spurning um að vera aðeins öðruvísi, finnst heldur margir hérna vera komnir með M-tech II eða stefna á að fá sér svoleiðis. Ég er ekki að segja að það sé ljótt því þetta er með því huggulegra sem hægt er að fá á E30 en mér finnst að fólk ætti að skoða aðra möguleika líka.
Fyrir mér kemur aðeins M-tech II eða orginal til greina, er búinn að finna svona kitt úti í .uk en ef einhver á hluta úr M- tech II kitti þá má hann senda mér PM.
M tech II er málið EN þeir líta alls ekki illa út án þess og sérstaklega þá eins og rauði e30 sem virðist vera viðmiðið ... sýnist að hann sé líka með einhverju auka dæmi undir IS lippinu sem lætur hann líta allsvakalega vel út að framan