Bjössi wrote:
íbbi_ wrote:
hann er geðveikur!!
ég verð samt að segja að... það er alveg búið að drepa 325 badge-ið sem eitthvað tæki, E46 325 er alveg steingeldur powerwise
það er líka eðlilegt því að í e30 og e36 var þetta það næsta sem þú komst m3, í e46 kom 330 og svo nú 335, í dag er 325 bara prump
Jasso, það fer nú allt eftir því hvað menn kalla að prumpa í stampinn vænti ég.
Síðan hvenær eru 231 hestafl orðið algert prump? Ég er ekki að leita að ultimate power í bílum, nenni í 1. lagi ekki að borga fyrir það né halda því við lengur (hef átt ///M, t.d. MCoupe) og vil frekar sjá "rétta" línu milli driveability, handling og "krafts", sem flokkaðist kannski sem vöntun á krafti að sumra mati.
Engu að síður á ég mótorhjól til að fá "ultimate kick" ef vill og mun alltaf eiga slík tæki. Ef menn hafa prufað alvöru hjólamennsku er að mínu mati ekkert í bílaheimi sem getur komið í stað þess, allavega okkar megin við Bugati Veyron.
Hitt er annað mál að 335i Coupe er svaðaleg græja og væri frólegt að sjá comparison á honum og komandi e92 V8 M3.
Það er kannski ekki að ástæðulausu að margir af hinum alvitru skríbentum hafa í mörg ár sagt að milli sexurnar frá BMW, í þessu tilviki 325i, (335i frátalinn) væru skemmtilegustu vélarnar, eða skemmtilegasta kompromíið kannski.
Meðan ég dáist að mönnum eins og Fart sem lifa drauminn og kaupa sér e90 M5 og nota eins og til er ætlast er ekki þar með sagt að allir hafi þann draum.
Ein af mínum óskum er að eiga Smart Brabus Roadster Coupe, 101 hestafla Gokart. Rándýrt nýtt, hríðfallið í verði, bargain.
Annað er að þetta er kannski að bera saman epli og appelsínur að vissu leyti, coupe vs. cabrio, en e85 3.0 er að mínu viti 231 hestafl, non si það er, léttari bíll vænti ég og allt það en þetta er allt relatíft. Allavega sama hestaflatala ef menn eins og er að verða algengt í dag, einblýna á það.
Og nota bene hér ekki verið að hrauna yfir einn né neinn, þaðan af síður e85 og þeirra eigendur, ég myndi meira að segja leggjast svo "lágt" að kaupa Z4 2.5si, aum 218 hestöfl ef ég keypti Z4 cab.
Það er margt í mörgu, fátt í fáu og ekkert í ekki neinu eins og það heitir.
En þessi rauði er geggjaður finnst mér.
G