Gera upp alternator, E36

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Gera upp alternator, E36

Postby Icekorn » Tue 24. Oct 2006 19:29

Sælir félagar, bimminn minn tók upp á því að hætta að hlaða um daginn, svosem kannski ekkert skrítið, 95 árgerð, keyrður 215.000 og slatti af græjum í honum. Nú spyr ég, er mikið mál að skipta um kol í svona kvikindi, er e-ð til í því að kolin og spennustillirinn séu í stykkinu sem skrúfast aftan á alternatorinn? Er þetta svo einfalt að maður þurfi bara að fá það nýtt? Alternatorinn er á rafmagnsverkstæði en þeir hafa ekkert komist í að líta á hann og ég orðinn leiður á að bíða. Þetta semsagt E36 320i árg. '95. Alternatorinn er frá BOSH og er 80 Amp.
Elli

:oops: Japanskur bíll :oops:
BMW 320i '95 Avus Blau - Seldur
User avatar
Icekorn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 54
Joined: Mon 27. Feb 2006 19:36
Location: Egilsstaðir

Postby Eggert » Tue 24. Oct 2006 19:36

Þetta er örugglega til hjá einhverjum spjallmeðlim eða einhverjum sem hefur partað svona bíl. Óþarfi að setja bílinn í stopp til lengri tíma held ég...
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby Svessi » Tue 24. Oct 2006 21:10

Ég kann svosem ekkert á svona altinatora, en ég mæli með Rafstillingu í Dugguvogi 23.

Þeir gerðu upp altinatorinn í Hondunni hjá mér sem gjörsamlega var úr sér genginn. Held að þeir hafi skipt um meira en helminginn af draslinu inni í honum og hann var eins og nýr á eftir og þeir spöruðu mér helling af kúlum. Hef heyrt það sama frá nokkrum sem ég þekki. En eins og allstaðar þá þarf maður stundum að bíða eftir að þeir komist í að gera við dótið manns.

Gangi þér annars vel með þetta.
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests