Er með til sölu m50b25 vél þ.e. 2,5 lítra 192hp 24v vél með VANOS.
Þessi vél kemur úr e36 '94 325i bíl sem var ekinn e-ð rúmlega 230þkm. Vélin selst með öllu þ.e. tölvu, rafkerfi, alternator, vökvastýrisdælu, loftflæðimæli og loftsíuboxi.
Þetta er bara vélin, ekki swinghjól / kassi / skipting.
Ef menn vilja fara í e30 m50 swap þá þarf e34 olíupönnu og pickup þ.e. þessi mótor kemur úr e36, pannan og pickup'inn fyrir framan vélarbitann. Ég á einnig til pústgreinina sem fer úr eldgreinunum og e-ð niður ásamt súrefnisskynjaranum.
Vélin kemur með nýrri heddpakkningu og þeim pakkningum sem skipt er um þegar farið er í svoleiðis aðgerð.
Hvorki heddpakkningin né heddið sem var á vélinni fór heldur vantaði svona hedd á vél sem var í bíl og því var þetta skrúfað í sundur. Heddið á vélinni núna er þrýstiprófað og planað.
Það fór því hvorki vatn út í olíu eða öfugt og dótið hitnaði ekkert.
Mótorinn gekk mjög vel áður en hann var skrúfaður í sundur og ætti að ganga betur eftir þessa yfirhalningu, allt í standi þarna inni, knastásarnir líta vel út.
Passar í fullt af bílum náttúrlega e34 m50 bíla og e36 m50. Menn geta farið í æfingar e30 m50, skipt út fyrir úrbrædda, slappa mótora. Einnig mjög skemmtileg uppfærsla fyrir 320i m50 og 520i m50. Sama pannan í 520i og 525i m50 þannig þar er á ferðinni auðvelt swap.
Verð 130þús
Hægt að ræða við mig um að swappa o.þ.h. ævintýri.
Uppl.: Hér / EP / 895 7866


