Harðlæst afturhurð á E34

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Harðlæst afturhurð á E34

Postby Svessi » Sun 08. Oct 2006 02:50

Hurðin er alveg harðlæst, takkinn er alveg fastur niðri og ekki hægt að opna hurðina.
Þetta er í annað skiptið sem þetta gerist hjá mér, en sitthvor hurðin.
Ég er búinn að kaupa nýja læsingu og plastpinna en það sem ég var að spá í hvort einhver kynni aðra aðferð en að lemja undir hurðina og brjóta plastpinnana til að losa hurðaspjaldið?
Er ekki til nein leið til að opna hurðina?
Mér er hálf ílla við að gera þetta, en þetta er aðferð sem þeir í TB sögðu mér frá.

Svo annað lítið, hvoru megin er úti-hitamælis-sensorinn?
Mér skilst að hann sé á bakvið plastið fyrir framan hægra dekkið, en vil vera alveg viss áður en ég byrja á að rífa þetta í sundur.
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49

Re: Harðlæst afturhurð á E34

Postby Helgi M » Sun 08. Oct 2006 05:26

ég lenti í þessu vinstra megin að aftan hjá mér,, kallast "dead lock" og fyrstu skýringar sem ég fann var að bara hreinlega með því að klippa hurðarspjaldið af "semsagt eyðileggja það! " væri eina leiðin,, en allavega ég hugsaði mig betur um og fann leiðbeiningar hvernig ætti að gera þetta á ódýrari máta og gerði það þannig og á myndir til af aðgerðinni,, verð bara að pósta því hér á morgun,, er alltof drukkin í það núna :? og btw þetta er mjög líklega mótorinn, það er að segja fyrir læsnguna... allavega var það hjá mér og lýsir sér alveg eins :)
Ekki nógu margir
User avatar
Helgi M
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 494
Joined: Mon 11. Jul 2005 18:45
Location: Reykjavík

Postby StoneHead » Sun 08. Oct 2006 12:15

Þetta gerðist á gamla 520 bílnum mínum.

Ég skrúfaði niður rúðuna, skrúfaði plastið af pinnanum til að læsa, náði í töng og bað pabba um að toga upp mjög fast. Hann færðist lítið og ég gat opnað hana með að kippa í haldfangið innaní og að utan á sama tíma.

Mig minnir að við höfum opnað hana svona, skal spurja bara gamla að því.
StoneHead
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 260
Joined: Wed 01. Oct 2003 00:57

Postby Helgi M » Mon 09. Oct 2006 01:15

Jæja þá loksinns drattaðist ég að þessu,, en þetta er ekki mikið um myndir og langt síðan ég gerði þetta þannig að þetta verður loðið,,

Mér fannst betra að byrja á að losa afturbekkinn úr,, gerir það með því að tosa í hann að framanverðu, eru 2 smellur sem halda honum og svo rennuru honum bara að þér svo að þú brýtur ekki sætisbeltaplöstin við að taka hann alveg af

Image

svo kemur að því að taka þéttilistan af og til þess er betra að fjarlægja einnig plastið sem að er yfir sætisbeltinu og því er bara smellt af

Image

næst losaði ég skrúfurnar og rúðu handfangið og auðvitað læsingar plast tappan sem að er skrúfaður á,

Image

því næst tók ég þunnt skrúfjárn með heimatilbúnu skrauti á :lol: og setti á milli hurðarspjaldsins og "gluggalistans" sem að e´g hélt í fyrstu að væri fast saman

Image

gerir þetta jafnt og þétt og tosar í það aðeins til að hjálpa

Image

þarna efst eru littlar smellur sem auðvelt er að losa hurðarspjaldið frá

Image

og eins og sést er þá komið smá bil þarna og spjaldið er fest með smellum utarlega á spjaldinu allan hringinn svo að þarna stoppaði ég aðeins og í mínu tilviki fann ég beyglað krossarastýri í skúrnum og notaði það til að stinga þarna niðreftir og þrýsta laust á spjaldið þangað til að ég náð að losa nokkrar smellur og tróð svo höndinni þar neðan frá á milli og smellti restinni af með höndunum

Image

þegar það ævintýri er búið sést mótorinn blasa við bakvið einangrunina sem að ég var btw búin að taka frá á þessari mynd en hún er bara límd á, og það er þreytandi að losa mótorinn því skrúfurnar eru þarna á bakvið og að mig MINNIR er 6 eða 7 ef til vill 8 mm stærð á þeim og eru tvö stykki af þeim sem halda honum, og lítið er um rýmið sem hægt er að snúa lyklinum/toppnum þarna svo að þetta tekur nokkrar mínútur kannski

Image

og þarna er hann ónýtur greyið, harðlæstur niðri, en ég fór í tb og þeir áttu hann til svo að ég setti hann í og það gekk allt saman vel og mikið þægilegra að þetta með opna hurð auðvitað en hana opnaði ég auðvitað eftir að mótorinn var komin úr,,

Image

Vonandi kemur þetta þér að einhverjum notum og kannski til auðveldari leið en þessi fannst mér best,,
Ekki nógu margir
User avatar
Helgi M
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 494
Joined: Mon 11. Jul 2005 18:45
Location: Reykjavík

Postby Bjöggi » Tue 10. Oct 2006 12:49

bara ef öll svör væru svona ýtarleg, þá þyrfti engin bílaverkstæði... 8)
Bjöggi
BMW 318IA E46 Touring '01
User avatar
Bjöggi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 346
Joined: Thu 01. Jun 2006 13:41
Location: RVK

Postby Svessi » Fri 13. Oct 2006 19:31

Takk æðislega fyrir þetta Helgi M.

Ég er loksins búinn að skipta um mótor og hurðin virkar fínt núna.

Ég fór reyndar aðeins öðruvísi að en þú.
Í stað skrúfjárns þá notaði ég hreinann kíttisspaða og það fannst mér virkar mjög vel.
Ég lét plastið á milli hurðana eiga sig og einnig þéttilistann.
Ég lét líka plastið sem öskubakkinn og hurðahúnninn er, vera í. Ég er með rafmagnsrúður afturí líka svo það var nóg fyrir mig að taka takkann úr og þá gat ég tekið vírinn úr handfanginu.
Eftir það tók ég um 20 cm langann spítubút, tusku og lagði það uppað plastkantinum sem er dökkblár á myndunum sem Helgi M póstaði inn. Var með lítinn slaghamar og sló upp. Þurfti að beyta smá afli og við þurftum að vera tveir í þessu, annar hélt spítunni upp að kantinum og togaði í hurðaspjaldið uppávið á meðan hinn hélt neðri hluta spítunar frá hurðaspjaldinu og sló með slaghamar undir. Held að það hafði ekki tekið okkur nema kannski 20-30 mín að losa spjaldið frá, semsagt frá því við byrjuðum og þangað til hurðin var opin.
Notabene rúðan var niðri allann tímann þangað til við skrúfuðum mótorinn úr.


Síðast þegar við gerðum þetta þá losuðum við ekki spjaldið í byrjun frá krómlistanum og þá var þetta miklu meira vesen.
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49

Postby Helgi M » Fri 13. Oct 2006 20:38

það var minnsta,, og flott að þetta hepnaðist með svona stuttum tíma :D
Ekki nógu margir
User avatar
Helgi M
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 494
Joined: Mon 11. Jul 2005 18:45
Location: Reykjavík

Postby jon mar » Thu 26. Oct 2006 22:47

hvað kostar svona motor?
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.
jon mar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3213
Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Location: Akureyri

Postby íbbi_ » Fri 27. Oct 2006 00:14

það er hgægt að setja sona dead lock á hurðarnar á fjarstýringuni með einhevrju trixi sem ég man ekki hevrnig er.. ég læsti félaga minn inní sjöuni sinni einu sinni sona.. hahaha
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Helgi M » Fri 27. Oct 2006 01:09

Talar bara við TB þeir hljóta að eiga svona til
Ekki nógu margir
User avatar
Helgi M
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 494
Joined: Mon 11. Jul 2005 18:45
Location: Reykjavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests