Jæja drengir, við Addi erum búnir að vera klóra okkur í hausnum yfir bílnum í gær og dag, ég byrjaði á því að skipta um vatnslás og sjá hvort þetta hitavandamál myndi ekki laga sig. Nema hvað, ekkert gengur, því fer ég í tb og kaupi viftukúplingu og vatnsdælu, Addi skipti um dæluna og kúplinguna, ennþá hitar hann sig.
Vatnslásinn vill bara ekki opna sig og vatnið er ekkert sérstaklega heitt, samt fer hitamælirinn í ruglið og bíllinn fær vitlausa blöndu og kokar geðveikislega.
Hver er ástæðan fyrir því að vatnslásinn opnast ekki??

