Maður dagsins

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Maður dagsins

Postby Aron Andrew » Tue 03. Oct 2006 10:11

Mamma kallaði á mig í morgun og sagði mér að kíkja á fíflið sem er framaná blaðinu í dag, var það þá ekki bara einn snillingurinn úr l2c.

Image

Vill ekki drepa sig á hraðakstri
Ársæll Erlingsson er forfallinn bíladellukarl og segist ekki vera einsdæmi um menn sem vilja keyra hratt.

Ársæll erlingsson er próflaus eftir ofsaakstur:
Hraðametið er 220
- Veit að ég er stórhættulegur - Dreymir um kraftmeiri bíl

"ég hef hraðast ekið á 220 kílómetra hraða" segir Ársæll Erlingsson,tvítugur piltur frá Akranesi, sem segist vera forfallinn bílaáhugamaður. Mikið hefur borið á hraðakstri ungs fólks en banaslys eru nú orðin fleiri en á öllu seinasta ári.
"Ég var sviptur ökuréttindum þegar ég var tekinn á 100 kílómetra hraða innanbæjar" segir Ársæll en hann missti prófið í þrjá mánuði. Hann segist aðeins einu sinni hafa verið sviptur réttindum, en mögulega missi hann þau aftur vegna punktakerfisins.

Hann segist finna mikið "adrenalínkikk" af því að keyra á miklum hraða og líkir því við fíkn. "Þetta er sjúklega gaman" segir hann. Ekki hefur Ársæll alltaf sloppið vel frá hraðanum. Hann lærbrotnaði einu sinni þegar hann velti bílnum á miklum hraða. Hann segist þakka guði fyrir að vera á lífi eftir þá byltu. "Ég á mynd af klesstum bílnum uppi á vegg og hún minnir mig á það hversu vel ég slapp," segir Ársæll, sem heldur samt áfram að aka á ofsahraða.

"Ég veit að ég er stórhættulegur og ég fæ alltaf smá sting þegar ég horfi á auglýsingar frá Umerðarstofu" segir Ársæll en bætir við að hann eigi því miður til að gleyma þeim hörmungum sem hafa dunið yfir þegar hann finnur sig frjálsann á þjóðveginum.

"Ég hætti eginlega í skóla til þess að fjármagna bæði tjón sem ég hef valdið og til þess að eiga fyrir rúntinum" segir Ársæll en bíladellan hefur bitnað á honum á marga vegu. Í þrígang á síðasta ári varð hann valdur að umferðaróhöppum.

Hann segist ekki vera sá eini sem hefur gaman af að keyra hratt og bendir á það mætti draga stórlega úr hættunni ef sómasamleg aðstaða væri til þar sem unnt yrði að keyra hratt og fá útrás.

Ársæll tekur það fram að hann tefli ekki farþegum sínum í tvísýnu með hraðakstri. Hann segist meðvitaður um afleiðingar þess að keyra hratt og hann vilji ekki lifa með það á samviskunni að hafa orðið valdur að dauða annara. "Ég geri mér grein fyrir að ég gæti dáið einn daginn en ég vil ekki drepa mig á hraðanum." segir hann. Ársæll á sér draum um kraftmeiri bíl."
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Djofullinn » Tue 03. Oct 2006 10:34

Hey hvað er aftur nickið hans á L2C? Hann er allavega með mynd af sér í avatar :roll:
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Aron Andrew » Tue 03. Oct 2006 10:40

SurtZ
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby jens » Tue 03. Oct 2006 10:42

](*,) hvað er Blaðið að taka viðtal við svona strák, það hefur nú verið venjan að leyfa mönnum ekki að vera með svona sögur í blöðum. Held að þetta geri ekki neitt í umferðarátakinu. Vona að ég þurfi aldrei að mæta honum eða koma að slysi sem hann veldur.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby jens » Tue 03. Oct 2006 10:49

Ég er viss um að ef þetta "" hraðamet "" er tekið og deilt með 2 og útkoman er dreginn frá greindarvísitölu þessa drengs þá kemur samt út mínustala.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby Hannsi » Tue 03. Oct 2006 10:50

já því við hér allir erum svo saklausir um hraðakstur :roll:
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby ///MR HUNG » Tue 03. Oct 2006 10:53

Þetta er vinsælasti maður internetsins í dag :lol:
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image
User avatar
///MR HUNG
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6493
Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Location: Hrafnista

Postby Aron Andrew » Tue 03. Oct 2006 10:53

Hannsi wrote:já því við hér allir erum svo saklausir um hraðakstur :roll:


Það er ekki málið, en þessi gaur er í blaðaviðtali og hljómar eins og algjört fífl, segjandi að hann hafi hætt í skóla til að geta borgað tjón og svona semi "montar" sig af því að hafa verið valdur af 3 tjónum, hefði betur þagað um hraðakstur og reynt að gera eitthvað gott fyrir bíladellufólk!
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Djofullinn » Tue 03. Oct 2006 11:18

Þetta allavega eykur bara ofsann í mönnum sem vilja fá hraðatakmarkara og annað rusl í gang :(
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Hannsi » Tue 03. Oct 2006 11:23

fínnt segi ég þá kannski möguleiki að íslendingar drullist til að standa í hári stjórnvalda hér í stað þess að sitja á rassgatinnu og fylgja straumnum :roll:
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby freysi » Tue 03. Oct 2006 11:33

afsakið en,,,,



ÞVÍLÍKUR HÁLFVITI!!11!!1


Hvernig í ósköpunum getur maðurinn látið svona útúr sér við blaðamenn. Þetta er allravegna ekkert að hjálpa okkur
bílaáhugamönnum í umræðunni sem er búin að vera í fjölmiðlum upp á síðkastið. Sérstaklega þeim heilbrigðu :P
E90 320i '06

birkire wrote:4 door þristar... LEIM
freysi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 495
Joined: Mon 10. Nov 2003 01:11
Location: Honolulu, Hawaii

Postby siggir » Tue 03. Oct 2006 11:34

Maður dagsins?

Fífl dagsins :?
Last edited by siggir on Tue 03. Oct 2006 11:34, edited 1 time in total.
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory
User avatar
siggir
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1721
Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Location: 1 2 Selfoss

Postby fart » Tue 03. Oct 2006 11:34

Ég get ekki opnað þetta... fæ bara "LOW I.Q. WARNING" á skjáinn.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby freysi » Tue 03. Oct 2006 11:39

Hannsi wrote:fínnt segi ég þá kannski möguleiki að íslendingar drullist til að standa í hári stjórnvalda hér í stað þess að sitja á rassgatinnu og fylgja straumnum :roll:



Finnst þér þetta alltílagi að koma svona á forsíðu með þessar fullyrðingar?

Ef að það myndi fara útí það að hraðatakmarkarar yrðu settir í bila hér á landi þá eru íslendingar ekkert að fara mótmæla frekar en fyrri daginn. Þessi frétt hjálpar engum í þessari baráttur heldur ýtir frekar undir hræðslu yfirvalda og húsmæðra. Greinilegt að maður er virkilega í hættur hérna í umferðinni ef að fleiri eru með svona hugsunarhátt.

ps. ég er ekki að gera sjálfan mig að engli hérna, mér finnst þetta bara fyrir neðan allar hellur! :!:
E90 320i '06

birkire wrote:4 door þristar... LEIM
freysi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 495
Joined: Mon 10. Nov 2003 01:11
Location: Honolulu, Hawaii

Postby siggir » Tue 03. Oct 2006 11:41

Hannsi wrote:fínnt segi ég þá kannski möguleiki að íslendingar drullist til að standa í hári stjórnvalda hér í stað þess að sitja á rassgatinnu og fylgja straumnum :roll:


Það hefur margsannað sig að fokkðesistem stefnan virkar engan veginn. Þeir sem standa í því fara í fangelsi og hinir lenda undir smásjánni.
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory
User avatar
siggir
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1721
Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Location: 1 2 Selfoss

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 36 guests