e_b wrote:
Kíkti í Nesdekk og var sagt að ég ætti að nota eitthvað af eftirfarandi undir bílinn.
245/45-17
225/55-16
215/60-16
Nú ætla ég að spyrja eins og bjáni, en hvað þýða þessar tölur? 17 er nú líklega bara að þetta er dekk fyrir 17" felgur. En hvað þýða fyrstu tvær stærðirnar (t.d. 245/45)? Og hvernig matchar maður þessu við felgurnar (svo dekkin passi nú örugglega á felgurnar)?
Einnig, komast 16" felgur undir E39 M5? Annars held ég haldi mig við 17".
Nesdekk áttu hinsvegar engar felgur. Einhver staður sem þið mælið með til að versla felgur hér heima? Eða er kannski best að reyna að finna þetta á netinu? Lýst mjög vel á Style 66 felgurnar og myndi vilja reyna að redda mér svoleiðis.
Kv.
E_B
Varðandi tölurnar þá þýðir 245/45-17 eftirfarandi:
245 = breidd dekks í millimetrum
45 = hlutfall milli vegghæðar á dekki miðað við breidd, hér 45% og því er hún 0.45*245=110mm (þetta er semsagt fjarlægð frá ytri brún felgu í ystu brún dekks). Low profile dekk hafa lágt hlutfall, belgmikil dekk hátt.
17 = stærð felgu í tommum
Ég myndi mæla með 8" breiðum 17" felgum, t.d. Style 66 og nota á þær 235/45-17 dekk. Þetta eru stærðirnar sem BMW mælir með fyrir M5 fyrir vetrargang. Felgurnar geturðu verslað t.d. á ebay og dekkin af Tirerack.com eða Nesdekk.
_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...