Bremsur E34

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Bremsur E34

Postby Bjarkih » Mon 25. Sep 2006 10:31

Ég var að kíkja á bremsurnar hjá mér og sá að þær eru mjög mis-slitnar, hægri fram og vinstri aftur eru svo gott sem búnir en hinir klossarnir eiga mikið eftir. Hver er ástæðan fyrir þessu og er mikið mál að laga það?
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby JOGA » Mon 25. Sep 2006 10:38

Mjög líklega stirðar dælur. Sem sagt stimplarnir eitthvað stífir þar sem klossarnir eru minnst slitnir.

Ódýra leiðin er að reyna að pússa til stimpilinn og reyna að liðka þetta til.
Góða lausnin er að taka upp dælurnar.

Á Íslandi virðist ekki mikið vera skipt um bremsuvökva í bílum. Með tímanum safnast raki í vökvann og stimplarnir byrja að ryðga og verða leiðinlegir.

Þannig að skipta svo um vökva á kerfinu þegar allt er komið í flott form.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Postby IngóJP » Mon 25. Sep 2006 20:08

rétt er það...


ég bara skil ekki afhverju fólk skiptir ekki um bremsuvökva eins og allt annað geri það alltaf þegar ég skipti um klossa eða kaupi mér bíl þá er þetta alltaf gert
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby Lindemann » Mon 25. Sep 2006 23:29

alltaf að skipta um vökva á 2. ára fresti a.m.k.
Svo er líka hægt að mæla vökvann, ef rakinn í honum er kominn yfir 3% er hann ónýtur.

En eins og var sagt hér að ofan, þá þarf líklega bara að liðka upp dælurnar(kannski bara sleðana) og það er ekkert mál.
Samt ekkert verra að taka dælurnar bara upp, skipta um þéttingar allavega, kannski stimpla.
Það er fínt svona diy verkefni
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Postby Bjarkih » Tue 26. Sep 2006 06:59

Það er ca. ár síðan það var skipt um bremsuvökvann. Ég hef eiginlega ekki aðstöðu né tíma til að taka dæluna upp, er að flytja og allskonar svoleiðis vesen. En ég ætla allavega að reyna að skipta um klossana hringinn og diskana að aftann núna um helgina.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby JOGA » Tue 26. Sep 2006 08:24

Reyndu að liðka þetta til í leiðinni. Annars fara nýju klossarnir eins og þeir gömlu á stuttum tíma.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 14 guests