Hvernig tekur maður neðri partinn af baksætinu úr E39?
Ætla að taka leðrið í gegn en nenni ekki að half-ass það með því að vinna í leiðindar aðstæðum
Með fyrirfram þökkum
Óskar
IceDev wrote:Jæja, Þá prufaði maður það sem manni grunaði og viti menn, ég náði henni af
Þannig að ef einhver leitar af upplýsingum til að taka þessar sessur af þá getur hann fylgt þessum leiðbeiningum
Til þess að fjarlægja sessu í aftursæti E39
Gripið er framan á aftursætið ( myndin sýnir reyndar E36 en breytir ekki öllu) og einfaldlega lyft upp
Gæti verið dálítið stíft, taka bara á réttum stöðum og þá er þetta no prob
Þetta er svo idiot proof að það var fyndið
Gæti líka verið gott að kíkja þarna undir ef að þið eruð að heyra mikið hringl í bílnum, fann svona skrilljón evrur þarna undir
Myndi gefa þessu svona 1/10 í erfiðleikaeinkun
Users browsing this forum: No registered users and 13 guests