Góðan daginn,
Nú fer senn að líða að vetri og því vantar mig vetrardekk undir bílinn minn (E39 M5 2003). Einhverjar uppástungur (bíllinn er á original felgunum)?
Neglt/óneglt? Hef nú verið á negldum vetrardekkjum hingað til og hefði kosið að vera áfram á slíkum dekkjum (sérstaklega á þessum bíl

), en tek við öllum uppástungum.
Með hverju mælið þið (annaðhvort fyrir original felgurnar eða aðrar felgur - sem ég yrði þá að kaupa líka og mættu því ekki vera of dýrar) og hvað ætti góður gangur að kosta mig (þá með nýjum felgum ef þið mælið með öðrum felgum en original felgunum)?
Þið sem hafið verið á E39 M5 að vetri til, hvernig hefur það gengið?
Kv.
E_B