jon4 wrote:
Sælir..ég er að pæla í bíl sem er úti þýskalandi..
Hvað væri þessi kominn á mikið hingað heim með öllu...?
Veit allveg af reiknivélinni hérna að neðan..langar bara að forvtinast um svona ca.tölu..og hvar getur maður náð í þennan smára hamborg ? e-mail eða eitthvað í þá áttina?
http://www.mobile.de/SIDraR4Dq1rSaAh7JJ ... 224337734&
Bara til að byrja með þá vil ég gjanan svara hluta af þínum fyrsta pósti, þ.e. hvar nærðu í þennan Smári í Hamburg.
mail:
smarihamburg@hotmail.com
Tel: +491703110600
Ég er persónulega verslað tvisvar við Smára, og þó að mér hafi í fyrstu fundist furðulegt að senda ja nokkuð magn af peningum á mann sem ég þekkti lítið, þá fann ég ekki fyrir NEINUM efasemdum núna.
Í alvöru, þegar menn er að skipta á fjölda bifreiða í öllum verðflokkum, af hverju ættu menn þá að reyna að svindla á einhverjum einum eða tveimur með hlutfallslega ódýra bíla? Til hvers! Við verðum að hafa í huga að menn fara ekki að skjóta sig í fótinn með að svindla á sínu lífsviðurværi!!!
Það er hins vegar staðreynd að bílar eru misjafnir, og við getum allir lent á góðum og slæmum bílum. Ekki er fólk almennt að níðast á brimborg af því að það fær mánudagsbíl, og jú maður getur fengið mánudagsbíl þótt maður versli hann nýjan frá umboði.
Það að Smári prófar og skoðar bílinn, minnkar AUÐVITAÐ líkur á mánudagsbíl, sem er klárlega betra en að taka orð sölumanns.
Smári er búinn að reynast mér ótrúlega vel þessi tvö skipti sem ég hef notið þjónustu hans, og það er mikill munur að fá sendar myndir frá þýskalandi og nákvæman (staðfestan) búnað bifreiðarinnar. Þægindin líka við að fá símtal frá honum þegar hann er að skoða bílinn, og maður getur spurt um allt og ekkert, og hann lýsir bílnum í bak og fyrir.
Smári er í Þýskalandi, prófar og skoðar bílinn og í raun kaupir hann ekki ef hann finnur eitthvað furðulegt, eða eitthvað að bílnum.
Fyrir utan þau gjöld sem Smári gerði ráð fyrir (vsk, tollur, fragt, osf osf) held ég að ég hafi greitt topps 20. þús í annnan kostnað, þar með talið skoðun, bifreiðagjöld osf. Kostnað sem maður sleppur aldrei við.
Smári svarar alltaf emilum og símtölum.
Vinnan hérna heima felur aðalega í sér smá útúrdúr hér og þar, ekkert sem maður myndi borga fyrir, ef ferlið hérna heima er eiithvað mál er ég alveg tilbúinn til að aðstoða þig við það.