fart wrote:
[

hehehehe...!!!
Ég verð nú bara að segja að maður myndi jafnvel íhuga svona til að geta keyrt E60 M5 í Evrópu alla daga!
Tókum gott RUN áðan með Fart í Lux, svo hádegismat á eftir. Ekki gott að gera svona nýbúinn að borða, glott. Þetta var EKKI leiðinlegt!
Það sem hægt er að keyra þennan grip. Og þessar skiptingar í Mode 6. Það er eins og það sé verið að sparka í rassgatið á manni þegar hann skiptir. Þetta er alveg truflaður gripur.
Ég er ekki frá því að það hafi minnkað á húðinni á dekkjunum hjá Fart... og jafnvel safnast meira af húðinni á okkur hinum við þessar æfingar.
Ég ætla bara að henda mínum E39 e-s staðar á leiðinni, hann er svo lítil græja við hliðina á E60. Ekki beint aflið og útlitið... en bara....... græjan maður. Ég meina, ég er ekki einu sinni með HUD í vinnunni minni... en það er í E60
En.. allavega, strákarnir farnir einir af stað í átt að Frankfurt. Ég er núna í Liege og svo upp til Danmerkur. Fínt trip saman þessa daga, aldrei að vita nema maður komi aftur eftir 2 vikur í lokarun þegar farið verður aftur á Nurburgring!
Takk fyrir mig Sveinbjörn og Oskar, svona eiga trip, RUN og Rönn að vera. Þetta var alveg Feitt Galta-Ljótt gaman (local húmor hjá ferju-bræðrum.
Yfir og út í bili.