Varðandi púst á E30, vonandi ný umræða

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Postby Geirinn » Thu 31. Aug 2006 14:21

JOGA wrote:
Geirinn wrote:
JOGA wrote:Takk fyrir þetta. Þú fórst til BJB er það ekki? Og þurftir að bíða í dágóðan tíma ??

En ef Einar kemur með of hátt tilboð þá fer ég til BJB og nefni þinn bíl. Æðislegt að hafa svona viðmiðun.


BJB. 2mán slétt.



Jæja. Ég fór með bílinn til Einars í gærkvöldi. Hann kom heim frá útlöndum í dag og hringdi í mig. Gerði mér tilboð upp á ca. 40 þús. Ég sagði honum frá verðinu sem stæði til boða hjá BJB og úr varð að hann náði í varahluti þangað, og setti undir hjá sér. Bíllinn er núna tilbúinn og ég á að greiða 26þús fyrir.

Ég sæki bílinn á morgun og vona að hann hljómi vel. Hann vildi nú samt meina að ég fengi fallegra hljóð með kerfi smíðuðu af honum.

En ég er vel sáttur við þjónustuna. Beið innan við 24 tíma... :wink:
Það er vel þess virði að borga 3þús aukalega fyrir það.


Með hljóðið... ég var orðinn DAUÐleiður á hávaða... :lol:

En hávaði er ekki það sama og gott hljóð... ég er mjög sáttur með þetta en ætla klárlega að prófa eitthvað annað seinna, just for the fun of it.

Var að pæla í að leita eftir einhverju aftermarked dæmi undir þetta en þar sem 20k+ er ekki shit þá var þetta ákvörðunin í bili.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby JOGA » Thu 31. Aug 2006 14:32

Ég sótti bílinn áðan. Bíllinn er mjög hljóðlátur. Enda svo til orginal kerfi (túbur smíðaðar af honum).

Ég er bara mjög sáttur. Hentar mér vel að hafa hann hljóðlátan, með ungabarn á leiðinni og einn 5ára auk þess sem konan keyrir hann oftar en ég.

Svo vil ég mæla með Einari. Þjónustulundin hjá kallinum er aðdáunarverð. Hann var eins og áður sagði innan við 24 tíma að klára þetta. Svaraði öllum spurningum frá mér. Sýndi dellunni skilning o.s.frv.

Það getur svo vel verið að maður fái sér eitthvað flottara kerfi seinna (t.d. þegar stærri/öflugri vél færi í).


En nú er það næst að fá skoðun á kaggan (var sett út á pústið seinast) og sækja nýju númerin mín, setja nýja brettið á og sprauta og laga.

Nóg að gera í E30 dellunni :wink:
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Previous

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 17 guests