Sælir
þannig er mál með vexti að ég keypti eitthvað súrt pakkningasett frá B&L á heilar 13.000kr... Sem virkar síðan ekki fyrir racketið mitt, eða, það hélt áfram að pissleka alveg eins og það gerði áður.
En ég hef verið að spá hvort ég hafi sett vitlausan vökva á helvítis racketið?
Ég fór á Essó og keypti mér bara ATF (eins og stendur á forðabúrs-lokinu), er þetta vitlaus vökvi eða?
---
Annað mál,
Varð frekar pirraður á þessu undir bílnum áðan og hringdi í B&L í þeim hug að panta nýtt svona, svo þegar ég heyrði verðið.... 227.000kr, þá sleppti ég því og gúglaði þetta. Þeir eru með nokkur svona á Ebay, á ca $300, er ekki nokkuð seif að panta bara á netinu?
með von um góð svör,
haukur



