bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 25. May 2025 13:34

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 12 posts ] 
Author Message
 Post subject: BMW Boddíhlutir
PostPosted: Tue 25. Jul 2006 18:23 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Jæja, núna er ég orðinn svolítið svartsýnn á að geta notað frambrettið mitt sem ég hirti af E30 325 bílnum hjá mér. Það er svolítið ryð í því neðst niðri sem ég held að taki ekki að vera elta..

Pælingin hjá mér er þessi, frambrettið kostar 24 kall í B&L nýtt en rúmlega 8 þúsund hjá varahlutir.is ? Hefur einhver reynslu af þessum félögum hjá varahlutir.is og hvernig varningurinn þeirra er. Auðvitað er nú skemmtilegra að vera með orginal en ef þetta er nákvæmlega sama shittið þá skil ég nú ekki ástæðuna að vera spreða í þennan svakalega mismun.

Með von um góð svör.

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 25. Jul 2006 20:21 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Posts: 5955
Location: Litla Ameríka
Svo mikið sem ég veit þá er þetta ekki sama shittið :wink: Brettið frá BogL ÆTTI að vera það nkl. sama og er original á bílnum, þ.e.a.s. það er sama þykkt á málminum og það ætti einnig að smellpassa á bílinn. Brettið frá varahlutir.is er líklegast frá aftermarket framleiðanda sem framleiðir á marga aðra bíla líka, málmurinn í brettinu er líklegast þynnri og þú gætir þurft að "mixa" það aðeins á, hence the lower price :wink:
En geturðu ekki fundið notað bretti í góðu standi? En annars, ef varahlutir.is eru með brettið á lager(sem mér finnst ólíklegt) þá myndi ég vilja fá að skoða það, ef ég væri í sömu sporum :lol: Og ef þetta er sami skíturinn þá náttúrulega kaupirðu bara brettið frá varahlutir.is :)

_________________
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 25. Jul 2006 22:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
ömmudriver wrote:
Svo mikið sem ég veit þá er þetta ekki sama shittið :wink: Brettið frá BogL ÆTTI að vera það nkl. sama og er original á bílnum, þ.e.a.s. það er sama þykkt á málminum og það ætti einnig að smellpassa á bílinn. Brettið frá varahlutir.is er líklegast frá aftermarket framleiðanda sem framleiðir á marga aðra bíla líka, málmurinn í brettinu er líklegast þynnri og þú gætir þurft að "mixa" það aðeins á, hence the lower price :wink:
En geturðu ekki fundið notað bretti í góðu standi? En annars, ef varahlutir.is eru með brettið á lager(sem mér finnst ólíklegt) þá myndi ég vilja fá að skoða það, ef ég væri í sömu sporum :lol: Og ef þetta er sami skíturinn þá náttúrulega kaupirðu bara brettið frá varahlutir.is :)


Léttara :twisted:

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 25. Jul 2006 22:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08
Posts: 3377
þetta er nú bara gamla bíll en ef þetta á að vera eitthvað fínt farðu þá í orginal því að það getur stundum verið pain að möndla þetta á

_________________
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 25. Jul 2006 23:01 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Ég held að ég fari ekki með feipur þegar ég segi að Kiddi 335i hafi keypt sér aftermarket bretti.... og þau eru allavega komin á hjá honum :)

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 26. Jul 2006 00:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
ég setti bretti á E34 bíl frá ónefndri varahlutabúð.. og sama hvað maður gerði þá var ekki hægt að loka hurðini :lol: þá var bretti rifið af öðrum bíl og þá small þetta allt

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 26. Jul 2006 10:43 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Já já ég skil alveg að "you get what you pay for". En ég keypti þennan bíl á ekki mikla peninga og ætla mér nú ekki endilega að sólunda í hann óþarfa deigi ef ég þarf þess ekki.

Varðandi að finna annað bretti er að þá er þetta Pre Facelift bíll og það er svo lítið verið að rífa þá upp á síðkastið.

Hitt brettið sem ég er með er alveg fullkomið nema neðst, þar er það farið að ryðga svolítið mikið. Spurning hvað ég geri í því..... ég ætla aðeins að prufa að slípa það niður og sjá hvort þetta fari allt til anskotans.

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 26. Jul 2006 10:43 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Mon 19. Jun 2006 18:28
Posts: 45
ég er með aftermarket bretti á bílnum hjá mér, og þetta er farið að ryðga doldið, og félagi minn var með svona hjá sér líka og þetta var eini boddyhluturinn á bílnum sem var farinn að ryðga. er reyndar á e36
en aftermarket er alltaf aftermarket. persónulega mundi ég frekar kaupa mér notað bretti eða bara nýtt original heldur en þetta aftermarket rusl :roll:

_________________
Bmw e36 325ia


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 26. Jul 2006 15:23 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Posts: 2492
Location: Reykjavík
aftermarket bretti eru ekkert úr málmi sem á það meira til að rygða.
Ef undirvinnan og ryðvörnin er í lagi þá ætti brettið að endast vel.
Held að undirvinna, lakkvinna, ryðvörn sé miklu mikilvægara ef brettið á ekki að ryðga strax.
sömu bretti á pre og facelift bílunum.

_________________
Bjarki
E39: 540iA '98


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 26. Jul 2006 18:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Ertu alveg viss með það? Festingar ekkert öðruvísi eða neitt slíkt?

Það var einhver vitur maður sem sagði mér að þetta væri ekki það sama, ég man bara ekki hver...

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 26. Jul 2006 19:06 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Posts: 2492
Location: Reykjavík
Á öllum þeim aftermarket brettum sem ég hef sett á bíla þá voru festingar alltaf eins og aldrei neitt vandamál með passanleika.
Held að málið sé frekar það að menn nenna ekki eða kunna ekki að stilla þetta rétt. Að stilla boddyhlut getur alveg tekið smá tíma ef maður vill hafa þetta fullkomið.
Ég er ekki að segja að þetta sé jafngott og orginal, það er náttúrlega best.
En aftermarket er mjög vel nothæft.

_________________
Bjarki
E39: 540iA '98


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 26. Jul 2006 20:42 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Þannig ég get farið að svipast um eftir notuðu facelift bretti þá bara?

Eða ég fattaði reyndar eftir á að ég geti látið fyrirtækið sem ég vinn hjá kaupa brettið,,, það sparar nátturulega smá peninga.

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 12 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 17 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group