BMW 735IAL

Hér skal spjalla um BMW.

BMW 735IAL

Postby Guest » Sat 14. Jun 2003 02:05

sælir! :o
getur einhver sagt mér hvað væri raunhæft verð fyrir BMW 735IAL árg. 1990 rauður, 16" felgur, original aukafelgur fylgja + dekk, allur í leðri á víst að vera mjög vel með farinn ekinn 200 þús... getiði sagt mér eitthvað hvernig þessir 735 séu að virka, hvort þeir séu yfir höfuð eitthvað mikið að bila, hvað þá helst ef það er ekkert búið að gera fyrir hann (kramið).. allar upplýsingar um sona bíla eru vel þegnar, er að spá í að fá mér einn svoleiðis! :wink:
Guest
 

Postby Guest » Sat 14. Jun 2003 02:10

...og auðvitað hvernig eyðslan er, eins og fyrr segir eru allar upplýsingar vel þegnar! :D
Guest
 

Postby Guest » Sat 14. Jun 2003 17:04

hef heyrt hérna að þeir fari á 250 þús kr ....veit svo sem ekki hvað er mikið til í því
Guest
 

Postby Benzari » Sat 14. Jun 2003 17:40

Þeir hafa hrunið í verði þessar '87-'94 7-ur, mikið til af þeim.

Það virðist vera hægt að gera góð kaup í þessum drekum en þú þarft að borga meira en 250.þús. fyrir toppeintak.
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Sat 14. Jun 2003 17:53

Ég myndi skjóta á 6-700 þús fyrir mjög gott eintak... undir hálfir fyrir venjulegann.

En, er hann ekki vínrauður? Ekki RAUÐUR???

Svo þarf að vera búið að taka upp sjálfskiptinguna - þær eru að fara einmitt um þetta leiti.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Bjarki » Sat 14. Jun 2003 17:59

Sjálfskiptingarnar í þessum bílum geta alveg dugað lengur ef þær hafa fengið rétt viðhald í gegnum árin. 200þús mílur er ekki óalgengt.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Sat 14. Jun 2003 18:59

Er ekki vandamál með olíu eða eitthvað slíkt í sjálfskiptingunum?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby GHR » Sat 14. Jun 2003 21:37

Það er mjög algengt að sjálfskiptingarnar verða slappar í um 185þús (eða þar um bil) og ef ekkert er gert má gera ráð fyrir að það þurfi að taka þær í gegn í svona 215þús km. Ef samt eigendurnir keyra þetta eins og á að keyra svona bíla (limmaakstur) þá duga ssk. samt eitthvað lengur.
En það sem ég hef lesið og heyrt er að þegar þær eru settar í Park (drepið á bílnum og lagt honum :wink: ) þá eru þetta svo þungir bílar að þegar bíllinn rennur í parkið þá reynir þá gífurlega á sjálfskiptinguna og það er einmitt það sem er að skemma skiptingarnar.

Þú getur fengið þessa bíla á toppverði að mínu mati. Mjög fallegir bílar (langflottustu BMW að mínu mati > sjöurnar) og þrælskemmtilegt að keyra þetta (ekki eins og eitthverja Toyota beyglu :oops: ) Svona sanngjarnt verð er um 500-600þús en það fer síðan bara allt eftir eiganda og hvað hann er búinn að eyða miklu í viðhald og uppgerðar :P

Þú spyrð um virkni og bilanir??? Ef þú ert að leita þér að kraftmiklum bíl eða bíl sem er snöggur í hundraðið fáðu þér þá 325 eða 740/750.
BMW bilar meira en margir bílar (það er bara staðreynd :wink: ) en þetta er samt aðallega viðhald og oft dýrt viðhald en það er samt þess virði ef þú vilt keyra skemmtilegustu bíla sem eru framleiddir :wink:

Smá specs. um þessa bíla

735i, 6 cyl (M30)

Þyngd : 1600kg / 3520lbs
0-100 (automatic) : 9,1 sek
0-100 (manual) : 8,3 sek
hp/kW : 211/155
torque: 305 NM/4000 rpm
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Postby Benzari » Sun 15. Jun 2003 03:44

Einn '94 730iA bíll hjá Toyota ek.120.þús
Samkv. söluskoðun þarfnast hann smá lagfæringa. Verð 790.þús.

http://www.toyota.is/template1.asp?pageid=698
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby Guest » Mon 16. Jun 2003 02:33

kærar þakkir fyrir þetta drengir ég fer EKKI út í þessi kaup! :wink:
Guest
 

Postby Jón Ragnar » Mon 16. Jun 2003 18:12

ég var að spá í sama bíl, hann hefur lent í tjóni =/ og þegar maður gefur honum inn þá titrar hann helling

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Postby GHR » Mon 16. Jun 2003 20:56

Jon Ragnar wrote:ég var að spá í sama bíl, hann hefur lent í tjóni =/ og þegar maður gefur honum inn þá titrar hann helling


Athugaðu fyrst með drifskaftsupphengju, þær eiga það til að fara og þá titrar bíllinn á gjöf :?
BMW 325 (E30), E36 325 og E32 750 (Allt farið)
Í leit að E30 325 eða E34 M5 með hækkandi sól
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Postby Moni » Thu 19. Jun 2003 20:13

Samkvæmt lýsingunni þá held ég að þetta sé bíll sem ég var að spá í, og ef þetta er hann þá er þetta flott eintak!!! En þegar ég var að prófa hann þá kveikti ég á kösturunum og þá kviknaði í öryggjaboxinu!!! ég brunaði á bílasöluna, enda bara kominn 100-200m frá henni og drap á honum og þá var allt í reyk... Ég varð skíthræddur, hélt að ég hefði skemmt eitthvað en þá var þetta bara öryggjaboxið sem brann með tilheyrandi reyk... :oops: :lol:
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE
User avatar
Moni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Location: Garðabær


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests