Við skulum bara vona að afgangurinn af sumrinu verði skemmtilegri !
Benzari wrote:Alltof heitt![]()
Af hverju ertu ekki úti ha, af hverju að hanga inni í tölvunni ?????
Kv,
Einn fúll "sumarbíls"eigandi.
fart wrote:Benzari wrote:Alltof heitt![]()
Af hverju ertu ekki úti ha, af hverju að hanga inni í tölvunni ?????
Kv,
Einn fúll "sumarbíls"eigandi.
I work hard for the money.. annars er nú rólegt núna en maður þarf samt að vera á svæðinu. ætla reyndar í golf á eftir (stuttbuxur, Polobolur og 2L vatnsflaska)
Einsii wrote:Bjarkih wrote:Hvaða væl er þetta? Bara búa á réttum landshluta
Amen! Reykjavík er skítapleis og ekki er veður suddinn að bæta það!!
Thrullerinn wrote:Einsii wrote:Bjarkih wrote:Hvaða væl er þetta? Bara búa á réttum landshluta
Amen! Reykjavík er skítapleis og ekki er veður suddinn að bæta það!!
Er veðrið búið að vera svo frábært á Akureyri í sumar ??
Hlýjasti júní á Akureyri síðan 1988
Tíðarfar í nýliðnum júnímánuði var úrkomu- og umhleypingasamt um landið sunnanvert, en hagstæðara norðan- og austanlands, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands. Talsvert kuldakast gerði dagana 12. til 13. júní.
Meðalhiti í Reykjavík var 9,4 stig og er það 0,4 stigum yfir meðallagi. Meðalhiti á Akureyri var 10,9 stig og hefur ekki orðið hærri í júní þar síðan 1988. Meðalhiti á Hveravöllum var 5,8 stig, sem er einu stigi yfir meðallagi.
Úrkoma í Reykjavík mældist 58 mm og er það 17% umfram meðallag, en oft hefur þó rignt meira í júní, að því er fram kemur í yfirliti Veðurstofu. Úrkomudagarnir urðu þó óvenju margir, eða 24. Á Akureyri mældist úrkoman aðeins tæpir 10 mm og er það innan við helmingur meðalúrkomu þar. Þetta er minnsta úrkoma í júní á Akureyri frá 1998.
Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 143, 18 stundum færri en í meðallagi. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 188 og er það 11 stundum umfram meðallag.
Hæsti hiti í mánuðinum mældist 22,5 stig í Miðfjarðarnesi þann 10. júní.
Sjá www.vedur.is

Users browsing this forum: No registered users and 41 guests