by Geirinn » Tue 04. Jul 2006 19:00
Mæli með, eins og Þórir segir, að troða einhverjum texta þarna inn.
Afhverju ættum við að kaupa felgur í gegnum ykkur en ekki bara panta þær beint ? Eruð þið semsagt með góðan díl og geturðu gefið dæmi ?
Sterkur leikur líka að skrá inn gatadeilingu og offset og jafnvel hugmyndir um undir hvaða bíla felgurnar passa.
Viltu að allir contacti þig með spurningum eins og "Passar þetta undir Corollu '98?????"
Mæli jafnframt með því að þið kaupið ykkur .is lén ef Ísland er ykkar markaður. Vissulega kostnaður fólginn í því en fyrir mitt leiti er "Fake it 'till you make it" skárra en að fá tortryggni um leið og maður hoverar yfir fyrsta linkinn.
Það vantar einnig allar upplýsingar um hvernig ferlið virkar hjá ykkur, þ.e. hvernig fólk pantar og hversu langan tíma tekur að fá pöntun afgreidda, hvernig greiðslur ganga fyrir sig etc.
Ég veit til þess að stofnun úti í bæ fari yfir síður skv. reglum og gefi frest til að laga svona hluti ellegar fari í hart.
Dínamísk reiknivél væri sterkur leikur til að fá út viðmiðunarverð.
Gott framtak en lengi má gott bæta og ég vil líka vara þig við að pirrast á svona athugasemdum því þeir sem varpa á ykkur góðum athugasemdum hjálpa ykkur mest.
Kveðja, Geiri.
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR