Hafið þið lesið Blaðið í dag (mánudagur)?
Þar er haft eftir Sturlu Böðvarsyni samgönguráðherra og Einari Magnúsi Magnússyni, að það komi til greina að skoða hraðahemla, s.s. búnað sem gerir bilum ókleift að fara yfir 90km/h!
Þetta reyndar er á miklu frumstigi og það er bara verið að skoða þetta, en að fólk skuli láta sér detta svona lagað í hug?
Stefán Ásgrímsson ritstjóri FÍB-blaðsins er greinilega greindari maður en Sturla og Magnús, og er náturlega mikið á móti þessua og likir þetta við fasískar reglur.
Hvað yrði svo næst? Að setja tölvukubba beintengda við heilan sem lætur lögregluna vita hvenær við hugsum eitthvað "óæskilegt", a bit extreme, en hví ekki?
Við erum greinilega ekki fær um að bera ábyrgð á okkur sjálf að mati Sturlu.
Ég er nokkuð viss um að 99% hér er á móti þessu, en ef þetta er ekki eitthvað sem vekur reiði þá veit ég ekki hvað.




